Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 15:16 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, tók við Útflutningsverðlaunum forseta Íslands fyrir hönd fyrirtækisins. Alfreð Gíslason hlaut heiðursviðurkenningu fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi. Vilhelm Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu sem sér um framkvæmd verðlaunanna. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Grímur Sæmundsen stjórnarformaður tóku við verðlaununum við athöfn á Bessastöðum í dag. Bláa Lónið fékk verðlaunin einnig árið 2004 og hlýtur þau því nú öðru sinni, rúmum tveimur áratugum síðar. Í rökstuðningi úthlutunarnefndar kemur fram að fyrirtækið hafi um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið erlendis og átt þátt í að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar. Fyrirtækið var stofnað árið 1992 og hefur vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fyrirtæki sem rekur meðal annars hótel, veitingastaði og heilsutengda þjónustu auk þess að stunda rannsóknir og framleiða húðvörur. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 156,1 milljón evra á síðasta ári og jukust um 36 prósent frá fyrra ári. Tekjurnar voru um 40 milljónir evra árið 2014 og hafa því nær fjórfaldast á rúmum áratug. Hjá fyrirtækinu starfa nú meira en 800 manns af 44 þjóðernum. Rannsóknir á eiginleikum jarðsjávarins hafa meðal annars skapað grundvöll að þróun húðvara undir vörumerkinu Blue Lagoon Skin Science. Í rökstuðningnum er einnig fjallað um þær krefjandi aðstæður sem fyrirtækið hefur glímt við vegna jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga undanfarin ár. Þrátt fyrir ítrekaðar rýmingar og lokanir hafi fyrirtækið haldið áfram að þróa starfsemina. Alfreð heiðraður fyrir ferilinn í Þýskalandi Alfreð Gíslason hlýtur heiðursviðurkenningu verðlaunanna fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa rutt brautina fyrir íslenska handknattleiksþjálfara erlendis. Alfreð hóf feril sinn hjá KA en lék síðar með KR, TUSEM Essen í Þýskalandi og Bidasoa á Spáni. Hann var valinn íþróttamaður ársins árið 1989 og var um árabil lykilmaður íslenska landsliðsins. Eftir að Alfreð stýrði KA til Íslandsmeistaratitils árið 1997 hélt hann til Þýskalands. Hann stýrði Magdeburg til fyrsta Þýskalandsmeistaratitils félagsins og vann þrjá Evróputitla með liðinu. Síðar stýrði hann Kiel í ellefu ár. Undir stjórn Alfreðs varð liðið sex sinnum Þýskalandsmeistari, vann þýsku bikarkeppnina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu tvisvar. Alfreð hefur stýrt þýska landsliðinu frá árinu 2020. Liðið vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum árið 2024 og hafnaði í öðru sæti á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Útflutningsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og eru afhent nú í 38. sinn. Embla Medical hlaut verðlaunin í fyrra.
Bláa lónið Handbolti Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira