Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. ágúst 2026 11:36 Jeffrey Epstein í dómsal í Flórída árið 2008. AP/Uma Sanghvi/The Palm Beach Post Jeffrey Epstein var ákærður árið 2007 fyrir kynferðisbrot gegn tugum kvenna og hefði hæglega getað fengið lífstíðarfangelsi. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við yfirvöld sem endaði með því að hann hlaut átján mánaða dóm og afplánaði þrettán þeirra í fangelsi. Haustið 2008 var Epstein sóttur í fangelsi í Flórída á hverjum morgni, sex daga vikunnar, af einkabílstjóra sem skutlaði honum á skrifstofu góðgerðarstofnunar og svo aftur í fangelsið að kvöldi.
Þessi fordæmalausa tilhögun fangelsisrefsingar er meðal þess sem farið er yfir í nýjum þætti Skuggavaldsins, þar sem Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja ævi Epsteins frá upphafi til enda. Þetta er fyrri þáttur af tveimur um mál sem sjö árum eftir dauða Epstein skekur enn stjórnmál beggja vegna Atlantshafsins. Samkomulag sem tryggði stuttan dóm og mikil fríðindi Árið 2007 lá fyrir fyrir 53 blaðsíðna ákæruskjal þar sem lýst var kynferðisbrotum fjármálamannsins Jeffrey Epstein gegn tugum fórnarlamba, flestum undir lögaldri. Þetta voru ákærur sem hefðu hæglega getað leitt til lífstíðarfangelsis en voru þó aldrei lagðar fram. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við bandarísk yfirvöld og játaði Epstein á sig tvö minniháttar brot, hlaut átján mánaða dóm en sat bara inni í þrettán. Epstein fékk að yfirgefa fangelsið hvern morgun, sex daga vikunnar, og fór einkabílstjóri þá með hann á skrifstofu góðgerðarstofnunar sem hann hafði stofnað rétt áður en afplánunin hófst. Epstein dvaldi á skrifstofunni fram á kvöld og sneri aftur í fangelsið yfir nótt. Hann hafði sjálfur greitt sýsluembættinu hundrað þúsund Bandaríkjadali til að fjármagna yfirvinnu varðanna sem fygldu honum hvert fótmál. Fyrir utan að tryggja Epstein lítilvæga refsingu voru ákvæði í samningnum um að ekki mætti sækja til saka, nú né síðar, hugsanlega samverkamenn Epstein sem kynnu að hafa átt hlut í brotunum. Fórnarlömbunum var ekki sagt frá samningnum fyrr en hann var genginn í gildi sem alríkisdómari úrskurðaði síðar að hefði brotið gegn lögbundnum réttindum þeirra. Ekki enn vitað hvaðan auðurinn kom Hvernig sonur garðyrkjustarfsmanns frá Brooklyn sem aldrei lauk háskólaprófi eignaðist einkaeyju, eitt stærsta einbýlishús Manhattan og vinahóp sem samanstóð af forsetum, prinsum og Nóbelsverðlaunahöfum er saga sem hefur aldrei verið útskýrð til fulls. Sjá einnig: Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Þrátt fyrir að lífshlaup fárra manna hafi verið jafn rækilega undir smásjánni hefur ekki einu sinni þeim tekist sem rannsakað hafa fjármál Epstein árum saman að svara því hvaðan allur auðurinn kom. Fyrri þættinum lýkur þar sem Epstein fannst látinn í fangaklefa sínum í New York í ágúst 2019, 35 dögum eftir að hann var handtekinn á ný. Innan sólarhrings var setningin „hann drap sig ekki“ komin á kreik og þess ekki langt að bíða að Epstein málið gerði nánast allan almenning að samsæriskenningarsinnum. Í seinni þættinum verður fjallað um skjölin margumtöluðu, samsæriskenninguna sem sameinaði fólk þvert á allar pólitískar línur og stöðu málsins í dag. Skuggavaldið er aðgengilegt á Tal.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira