Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. ágúst 2026 11:36 Þessar fréttir voru birtar á dönskum fréttamiðlum. Skjáskot/Samsett Erlendir fjölmiðlar fylgjast með Íslandi í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Fulltrúar um fjörutíu fréttamiðla eru staddir hér á landi til að fjalla um málið.
Ef helstu fréttamiðlar nærri Íslandi eru skrunaðir má sjá Íslandi bregða fyrir og myndir af íslenskum fánum. Breska ríkisútvarpið tók saman helstu punkta fyrir lesendur sína og vísar í skoðanakönnun sem segir að 51,6 prósent hyggist segja nei en tekur fram að fyrri skoðanakannanir hafi talið já-sinna fleiri. Reifað er hvað sé í raun verið að greiða atkvæði um, helstu málefni og rök beggja hliða. Frétt breska ríkisútvarpsins. Umfjöllun danska ríkisútvarpsins féll í hendur Helga Ólafssonar sem birti myndband á vefsíðu DR í morgun. Helgi Ólafsson, blaðamaður danska ríkisútvarpsins, birti myndband um atkvæðagreiðsluna. Í TV2 í Danmörku er uppslátturinn annar en fyrirsögnin á þeirra frétt er að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana. Þau taka fram í fréttinni sinni að miðað við skoðanakannanir gæti litlu munað. Frétt danska fjölmiðilsins TV2. Langflestar fréttir á norsku miðlunum eru um andlát Haralds Noregskonungs en hann lést snemma í gærmorgun. Norska ríkisútvarpið birti samt sem áður stutta færslu um atkvæðagreiðsluna og birti norska TV2 einnig frétt um að atkvæðagreiðslan væri hafin. Sömuleiðis var birt stutt frétt á vefsíðu finnska ríkisútvarpsins. Færsla norska ríkisútvarpsins. Írska ríkisútvarpið minnist einnig á Trump í frétt sinni um atkvæðagreiðsluna en tekur fram að helsti ágreiningurinn fyrir atkvæðagreiðsluna hafi varðað innlend málefni. Þau ræddu við Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, eftir að hún tók til máls á fundi Áfram Ísland í gær. Frétt írska ríkisútvarpsins. Sænska ríkisútvarpið tekur einnig þátt í umfjölluninni og birti í gærkvöldi frétt um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þar ræddu þau við fulltrúa sjávarútvegsins og útskýrðu fyrir lesendum að málefni sjávarútvegsins hafi verið afar heitt málefni í aðdraganda kosninganna. Frétt sænska ríkisútvarpsins. Í þessum rituðu orðum prýðir Austurvöllur forsíðu AP-fréttaveitunnar og segja þau að Íslendingar gangi í kjörklefana eftir að Trump hafi ítrekað haft í hótunum um að taka yfir nágrannalandið Grænland. Forsíða AP fréttaveitunnar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Danmörk Svíþjóð Noregur Finnland Írland Bretland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira