Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 29. ágúst 2026 10:32 Til stóð fyrr í sumar að taka fyrir tillögu ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) um að ný ríki hefðu ekki neitunarvald innan sambandsins í nokkur ár eftir inngöngu í það. Því var hins vegar frestað fram í september til þess að forðast að „ágreiningur“ yrði um málið í aðdraganda þjóðaratkvæðisins hér á landi samkvæmt fréttavefnum Euractiv sem þykir jákvæður í garð Evrópusambandsins. Ástæðan er ljóslega sú að búizt er við samþykkt tillögunnar. Tilgangurinn með tillögunni er að draga úr áhyggjum ríkja Evrópusambandsins af því að ný ríki muni beita neitunarvaldi sínu óspart líkt og Ungverjaland undir forystu Viktors Orban, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Það eru ríki sambandsins sem þurfa að samþykkja tillöguna til þess að hún nái fram að ganga og allar líkur á því að þau geri það enda henni ætlað sem fyrr segir að bregðast við áhyggjum í þeirra röðum og tryggja hagsmuni þeirra gagnvart nýjum ríkjum. Teldist líklegt að tillagan yrði felld þyrfti Evrópusambandsins eðli málsins samkvæmt ekki að hafa áhyggjur af því að samþykkt hennar hefði neikvæð áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæðisins frá sjónarhóli þess. Hefði hún hins vegar verið samþykkt í sumar hefði það á hinn bóginn ekki aukið áhuga þjóðarinnar á því að ganga í sambandið. Enda varaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisraðherra við því í fréttinni að samþykkt tillögunna yrði ekki til þess að auka áhugann á því. Hér áður var neitunarvald, eða einróma samþykki, ríkja Evrópusambandsins reglan innan þess en heyrir í dag til algerra undantekninga. Það nær engu að síður enn til mikilvægra málaflokka eins og utanríkis- og varnarmála. Það nær hins vegar ekki til að mynda til orku- og sjávarútvegsmála sem skipta okkur Íslendinga miklu. Vert er að hafa þetta í huga þegar tekin er afstaða til þess hvort stefna eigi á ný að inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðinu sem fram fer í dag. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Til stóð fyrr í sumar að taka fyrir tillögu ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) um að ný ríki hefðu ekki neitunarvald innan sambandsins í nokkur ár eftir inngöngu í það. Því var hins vegar frestað fram í september til þess að forðast að „ágreiningur“ yrði um málið í aðdraganda þjóðaratkvæðisins hér á landi samkvæmt fréttavefnum Euractiv sem þykir jákvæður í garð Evrópusambandsins. Ástæðan er ljóslega sú að búizt er við samþykkt tillögunnar. Tilgangurinn með tillögunni er að draga úr áhyggjum ríkja Evrópusambandsins af því að ný ríki muni beita neitunarvaldi sínu óspart líkt og Ungverjaland undir forystu Viktors Orban, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Það eru ríki sambandsins sem þurfa að samþykkja tillöguna til þess að hún nái fram að ganga og allar líkur á því að þau geri það enda henni ætlað sem fyrr segir að bregðast við áhyggjum í þeirra röðum og tryggja hagsmuni þeirra gagnvart nýjum ríkjum. Teldist líklegt að tillagan yrði felld þyrfti Evrópusambandsins eðli málsins samkvæmt ekki að hafa áhyggjur af því að samþykkt hennar hefði neikvæð áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæðisins frá sjónarhóli þess. Hefði hún hins vegar verið samþykkt í sumar hefði það á hinn bóginn ekki aukið áhuga þjóðarinnar á því að ganga í sambandið. Enda varaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisraðherra við því í fréttinni að samþykkt tillögunna yrði ekki til þess að auka áhugann á því. Hér áður var neitunarvald, eða einróma samþykki, ríkja Evrópusambandsins reglan innan þess en heyrir í dag til algerra undantekninga. Það nær engu að síður enn til mikilvægra málaflokka eins og utanríkis- og varnarmála. Það nær hins vegar ekki til að mynda til orku- og sjávarútvegsmála sem skipta okkur Íslendinga miklu. Vert er að hafa þetta í huga þegar tekin er afstaða til þess hvort stefna eigi á ný að inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðinu sem fram fer í dag. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar