Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Kjartan Kjartansson skrifar 28. ágúst 2026 11:55 Bill White, sendiherra Bandaríkjanna í Belgíu, hefur látið ýmislegt fljúga um gestgjafa sína í Brussel. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Belgíu kallaði sendiherra Bandaríkjanna í landinu á teppið vegna ummæla þess síðarnefnda um belgíska heilbrigðisráðherrann. Þetta er í annað skiptið á þessu ári sem sendiherrann er kallaður á fund ráðherrans vegna óviðeigandi ummæla.
Bill White, sendiherra Bandaríkjanna í Belgíu, var ósáttur við að heilbrigðisráherra Belgíu vildi breyta viðvörunarmiðum á áfengisauglýsingum til þess að impra á skaðlegum áhrifum áfengis á heilsu fólks. „Hver er mesti LÚSERINN í Belgíu?“ spurði White í samfélagsmiðlafærslu með gervigreindarmynd af Frank Vandenbroucke, heilbrigðisráðherra, ofan á vindlakassa. Á kassanum stóð „Skemmir alla lífsánægju“. Þessi ummæli féllu í grýttan jarðveg hjá belgískum ráðamönnum. Maxime Prévot, utanríkisráðherra, kallaði White á teppið vegna þeirra. „Það er algerlega óásættanlegt að sendiherra noti svona móðgandi orðalag um ráðherra í ríkisstjórn,“ sagði Prévot við evrópska blaðið Politico. Sakaði Belga um gyðingahatur Þetta er ekki í fyrsta skipti sem White kemur sér í klandur hjá gestgjöfum sínum í Belgíu. Í febrúar var hann kallaður á fund utanríkisráðherrans eftir að hann sakaði belgísk stjórnvöld um gyðingahatur. Það var vegna rannsóknar yfirvalda á þremur gyðingum sem framkvæmdu umskurð á drengjum í Antwerp án tilskilinna lækningarleyfa. Þá sökuðu belgísk stjórnvöld White um að blanda sér í innanríkis- og dómsmál landsins. Beitti sér fyrir kynþáttahyggjumann White beitti sér einnig í þágu Nathans Cofnas, bandarísks nýdoktors við Háskólann í Ghent. Sá var settur í tímabundið leyfi í kjölfar þess að breskur prófessor sem var sakaður um ritstuld og blekkingar svipti sig lífi. Nýdoktorinn, sem er kynþáttahyggjumaður, var upphafsmaður ásakanna á hendur Jason Arday sem var svartur. Cofnas var rekinn frá Cambridge-háskóla, þar sem Arday starfaði, á sínum tíma vegna kvartana um að hann aðhylltist rasíska kynbótahyggju (e. eugenics). Þakkaði Cofnas sendiherranum fyrir að hafa blandað sér í málið og fengið leyfinu sem belgíski háskólinn setti hann í hnekkt. Háskólinn segir aftur á móti að rannsókn standi enn yfir á Cofnas og að hann fái ekki að kenna nemendum á meðan.
Belgía Bandaríkin Donald Trump Áfengi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Sjá meira