Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Boði Logason skrifar 28. ágúst 2026 08:00 Það verður nóg um að vera á Bylgjunni í allan dag. Bylgjan Útvarpsstöðin Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í dag og verður tímamótunum fagnað í allan dag með sérstakri afmælisdagskrá. Gamalkunnir þáttastjórnendur snúa aftur í hljóðverið og fjölmargir gestir úr sögu stöðvarinnar líta við. Bítið byrjaði afmælisveisluna í morgun og klukkan 9 verður svo sannkölluð endurkoma þegar Tveir með öllu snúa aftur í loftið. Þar verða Jón Axel og Gulli Helga við stjórnvölinn eins og á árum áður. Ívar Guðmunds tekur við klukkan 10 og fær til sín fjölda góðra gesta sem tengjast sögu Bylgjunnar. Þar á meðal verða Bjarni Ara, Svansý, Ólöf Marín og Rúnar Róberts. Í hádeginu mætir hinn eini sanni Siggi Hlö með liðinn vinsæla Veistu hver ég var? Beina útsendingu úr hljóðveri Bylgjunnar má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan: Erna Hrönn tekur við klukkan 13 og fær til sín góða gesti úr íslensku tónlistarlífi sem hafa fylgt Bylgjunni og þjóðinni í gegnum tíðina. Klukkan 15:30 mæta Logi Bergmann og Rúnar Freyr á ný í Bakaríinu og rifja upp gamla takta. Afmælisgleðin heldur áfram síðdegis í Reykjavík síðdegis, þar sem fyrrverandi þáttastjórnendur Bylgjunnar líta við og setjast við hljóðnemann með Kristófer, Auðuni og Páli Sævari. Útvarpsmennirnir Guðjón Smári og Jóna Margrét ætla að sjá um Vaktina á Vísi og greina frá helstu uppákomum dagsins. Vaktina má nálgast hér fyrir neðan, ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða (e.refresh) síðuna.
Bítið byrjaði afmælisveisluna í morgun og klukkan 9 verður svo sannkölluð endurkoma þegar Tveir með öllu snúa aftur í loftið. Þar verða Jón Axel og Gulli Helga við stjórnvölinn eins og á árum áður. Ívar Guðmunds tekur við klukkan 10 og fær til sín fjölda góðra gesta sem tengjast sögu Bylgjunnar. Þar á meðal verða Bjarni Ara, Svansý, Ólöf Marín og Rúnar Róberts. Í hádeginu mætir hinn eini sanni Siggi Hlö með liðinn vinsæla Veistu hver ég var? Beina útsendingu úr hljóðveri Bylgjunnar má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan: Erna Hrönn tekur við klukkan 13 og fær til sín góða gesti úr íslensku tónlistarlífi sem hafa fylgt Bylgjunni og þjóðinni í gegnum tíðina. Klukkan 15:30 mæta Logi Bergmann og Rúnar Freyr á ný í Bakaríinu og rifja upp gamla takta. Afmælisgleðin heldur áfram síðdegis í Reykjavík síðdegis, þar sem fyrrverandi þáttastjórnendur Bylgjunnar líta við og setjast við hljóðnemann með Kristófer, Auðuni og Páli Sævari. Útvarpsmennirnir Guðjón Smári og Jóna Margrét ætla að sjá um Vaktina á Vísi og greina frá helstu uppákomum dagsins. Vaktina má nálgast hér fyrir neðan, ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða (e.refresh) síðuna.
Bylgjan Sýn Tímamót Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira