Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2026 09:00 Frá leik Víkings Reykjavíkur fyrr í sumar. Diego/Vísir Víkingur Reykjavík á fyrir höndum krefjandi verkefni gegn Borac Banja Luka á útivelli í Bosníu & Hersegóvínu í kvöld í seinni leik einvígis um laust sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Mikið er undir og háar fjárhæðir sem sigurlið einvígisins tryggir sér.
Víkingur Reykjavík þekkir það vel að komast í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu og veit því sömuleiðis vel hvaða fjármunir fylgja því frá UEFA að komast á það stig í keppninni. Samkvæmt opinberu skjali UEFA mun hvert lið, af þeim 36 sem tryggja sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu, fá í sinn hlut í kringum 3.1 milljón evra, það jafngildir rúmum 447 milljónum íslenskra króna. Það væri lágmarkið sem Víkingar myndu tryggja sér með sæti í deildarkeppninni. Víkingur er 3-1 undir í einvíginu eftir fyrri leikinn hér heima og mun því þurfa að taka á honum stóra sínum til þess að snúa einvíginu sér í vil. Með því að tryggja sér sæti í deildarkeppninni koma síðan frekari möguleikar á því að vinna sér inn meiri pening í gegnum deildina. Ákveðnar upphæðir fást fyrir sigur í leik í deildarkeppninni sem og jafntefli. Komist lið síðan áfram í útsláttarkeppni mótsins mæta til leiks árangurstengdir bónusar. Það er því mikið undir hjá Víkingum í kvöld og möguleiki á góðum tékka takist liðinu að vinna upp forystu bosníska liðsins. Leikur Borac Banja Luka og Víkings Reykjavíkur hefst klukkan 18.30 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Víkingur Reykjavík Sambandsdeild Evrópu Íslenski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira