Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Samúel Karl Ólason skrifar 26. ágúst 2026 10:28 Eftir morðin kveikti Adam Smith í húsi foreldra sinna. Hann reyndi að flýja en svipti sig lífi þegar lögregluþjónar reyndu að stöðva hann. AP/Matthew Brown Átta meðlimir einnar fjölskyldu voru skotnir til bana þegar þeir komu saman til að borða á sunnudagskvöldið. Fjögur börn eru meðal hinna látnu en fjölskyldan hafði komið saman á kvöldverði í Montana í Bandaríkjunum þegar maðurinn gekk inn á heimili foreldra sinna, sem höfðu beðið hann um að flytja út, og hóf skothríð.
Hann kveikti síðan í húsinu og svipti sig lífi. Blaðamaður AP fréttaveitunnar ræddi við mann sem missti tvö börn og fyrrverandi eiginkonu í árásinni. Hann sagði að hinn 44 ára gamli Alan Smith hefði framið ódæðið. Það var eftir að foreldrar hans báðu hann um að flytja af heimili þeirra. Hann fór en sneri aftur á sunnudagskvöld með skotvopn. Þar myrti hann meðlimi fjögurra kynslóða úr fjölskyldunni, allt frá konu á tíræðisaldri niður í sjö ára stúlku. Því næst kveikti Smith í húsinu. Lögregluþjónar eru sagðir hafa verið fljótir á vettvang og heyrðu þeir skothvelli fyrir aftan húsið, skömmu áður en eldurinn blossaði upp. Smith reyndi að flýja en svipti sig lífi þegar lögregluþjónar reyndu að stöðva hann. Húsið brann til grunna. Börnin fjögur sem dóu. Frá vinstri: Owen Ireland, Landon Ghekiere, Charlotte Ghekiere og Chloe Ireland.AP Viðvaranir hunsaðar Brad Ireland átti tvö börn með Megan Ghekiere, sem var systir Smiths. Hann segir að Smith hafi flutt inn á foreldra sína fyrir nokkrum árum en þau hafi fyrir nokkrum vikum sagt honum að flytja út. Hann mætti þó heim til foreldra sinna á sunnudaginn og myrti ömmu sína, foreldra, systur sína og fjögur börn. Ireland segir að margir hafi lýst yfir áhyggjum vegna hegðunar Smiths í gegnum árin en enginn hafi hlustað. Hann lýsir morðingjanum sem atvinnulausum einsetumanni sem hafi varið nánast öllum sínum tíma í tölvunni. Adam Ghekiere, sem kvæntist Megan fyrir nokkrum árum, segir að fjölskyldan hafi yfirleitt komið saman á föstudagskvöldum og snætt saman. Það hafi þó ekki gengið eftir á föstudaginn og því hafi kvöldverðurinn verið á sunnudaginn. Adam var þá í vinnunni og segir hann að Smith hafi líklega ekki búist við því að öll börnin yrðu í húsinu. Það var Charlotte, tólf ára dóttir Ghekiere, sem hringdi á neyðarlínuna þegar Smith hóf skothríðina. Hér má sjá sjónvarpsfrétt NBC í Montana. Fjöldamorð með rætur í heimiliserjum AP fréttaveitan segir þetta 22. skiptið á árinu þar sem fjöldamorð er framið með skotvopni í Bandaríkjunum og það mannskæðasta frá því í apríl, þegar maður í Louisiana skaut átta börn, þar af sjö sem hann átti sjálfur, og særði eiginkonu sína og aðra konu. Af þessum 22 fjöldamorðum eiga að minnsta kosti fimmtán rætur í heimiliserjum og ofbeldi. Glæpafræðingur sem rætt var við segir það hlutfall töluvert hærra en gengur og gerist. Undanfarin ár hafi mátt rekja um helming fjöldamorða í Bandaríkjunum til heimiliserja.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira