Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar 25. ágúst 2026 17:02 Meðal helstu raka þeirra sem vilja ekki ganga í ESB og taka upp EVRU eru að sveigjanleiki Íslansku krónunnar komi í veg fyrir atvinnuleysi. Valið standi milli sjálfstæðrar peningastefnu eða atvinnuleysis. Nýlega fréttist að 1.100 – 1.400 iðnaðarmenn hefðu misst vinnuna undanfarna mánuði. Þegar að er gáð sést að það hefur engin áhrif á uppsetningu vindmilla Landsvirkjunar, það hefur heldur ekki áhrif á framkvæmdir Landsnets, uppbyggingu gagnavera, framkvæmdir við landeldisstöðvar, fjárfestingar stærri sjávarútvegsfyrirtækja, eða annarra sem yfirgefið hafa krónuhagkerfið. Hinn bitri veruleiki Uppsagnirnar eru nær eingöngu bundnar við þá sem fjármagna framkvæmdirnar með Íslenskum krónum. Það mætti líka orða þetta þannig að uppsagnirnar væru að mestu bundnar við fyrirtæki þar sem áhrifa stýrivaxtabreytinga Selabankans gætti. Þá erum við að tala um byggingu íbúðarhúsnæðis, framkvæmdir minni fyrirtækja og aðra þá sem fastir eru í krónuklóm. Hvimleið hliðaráhrif Þó það tengist atvinnuleysi ekki beint,þá skapar það mikinn og óþarfan kostnað við að vera sífellt að setja framkvæmdir í bið og síðan endurræsa. Töluverðu af þessum heljarsveiflum er mætt með breytingum á fjölda erlendra iðnaðarmanna á hverjum tíma. Þegar starfsfólk er sent heim þá er engin trygging fyrir því að það komi til baka í næstu uppsveiflu. Þar sem Íslenskar kröfur eru oft mun strangari en þekkist frá heimalandi viðkomandi gerir þetta það að verkum að sífellt er verið að þjálfa nýtt fólk í Íslenskum vinnubrögðum til að mæta Íslenskum kröfum. Þetta er bæði dýrt og stóreykur hættur á hvimleiðum fylgikvilla; GÖLLUM. Fallin kenning Þó kenningin um samspil gengis og atvinnuleysis hafi verið rétt á sínum tíma þá passar hún mjög illa inn í raunveruleikann á Íslenskum vinnumarkaði. Bæði er þáttur erlends vinnuafls orðinn mun mikilvægari til að mæta sveiflum í vinnuaflsþörf og síðan hefur það komið berlega í ljós að hún gildir alls ekki í þjóðfélagi sem notar þrjú gjaldmiðlaumhverfi; Íslenska krónu, verðtryggða krónu og erlendar uppgjörsmyntir. Þegar umhverfi byggingariðnaðarins er skoðað nánar sést að grunnþarfirnar eru keimlikar því sem annar iðnaður sækist eftir; Fyrirsjáanleiki, stöðugleiki og samfelldni. Ekkert af þessu mun nást með Íslenskri krónu, gjaldmiðli með innbyggða sjálfstortímingarhvöt. Náum stöðugleika og segjum: JÁ til að sJÁ. Höfundur er cand. oecon og MBA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Meðal helstu raka þeirra sem vilja ekki ganga í ESB og taka upp EVRU eru að sveigjanleiki Íslansku krónunnar komi í veg fyrir atvinnuleysi. Valið standi milli sjálfstæðrar peningastefnu eða atvinnuleysis. Nýlega fréttist að 1.100 – 1.400 iðnaðarmenn hefðu misst vinnuna undanfarna mánuði. Þegar að er gáð sést að það hefur engin áhrif á uppsetningu vindmilla Landsvirkjunar, það hefur heldur ekki áhrif á framkvæmdir Landsnets, uppbyggingu gagnavera, framkvæmdir við landeldisstöðvar, fjárfestingar stærri sjávarútvegsfyrirtækja, eða annarra sem yfirgefið hafa krónuhagkerfið. Hinn bitri veruleiki Uppsagnirnar eru nær eingöngu bundnar við þá sem fjármagna framkvæmdirnar með Íslenskum krónum. Það mætti líka orða þetta þannig að uppsagnirnar væru að mestu bundnar við fyrirtæki þar sem áhrifa stýrivaxtabreytinga Selabankans gætti. Þá erum við að tala um byggingu íbúðarhúsnæðis, framkvæmdir minni fyrirtækja og aðra þá sem fastir eru í krónuklóm. Hvimleið hliðaráhrif Þó það tengist atvinnuleysi ekki beint,þá skapar það mikinn og óþarfan kostnað við að vera sífellt að setja framkvæmdir í bið og síðan endurræsa. Töluverðu af þessum heljarsveiflum er mætt með breytingum á fjölda erlendra iðnaðarmanna á hverjum tíma. Þegar starfsfólk er sent heim þá er engin trygging fyrir því að það komi til baka í næstu uppsveiflu. Þar sem Íslenskar kröfur eru oft mun strangari en þekkist frá heimalandi viðkomandi gerir þetta það að verkum að sífellt er verið að þjálfa nýtt fólk í Íslenskum vinnubrögðum til að mæta Íslenskum kröfum. Þetta er bæði dýrt og stóreykur hættur á hvimleiðum fylgikvilla; GÖLLUM. Fallin kenning Þó kenningin um samspil gengis og atvinnuleysis hafi verið rétt á sínum tíma þá passar hún mjög illa inn í raunveruleikann á Íslenskum vinnumarkaði. Bæði er þáttur erlends vinnuafls orðinn mun mikilvægari til að mæta sveiflum í vinnuaflsþörf og síðan hefur það komið berlega í ljós að hún gildir alls ekki í þjóðfélagi sem notar þrjú gjaldmiðlaumhverfi; Íslenska krónu, verðtryggða krónu og erlendar uppgjörsmyntir. Þegar umhverfi byggingariðnaðarins er skoðað nánar sést að grunnþarfirnar eru keimlikar því sem annar iðnaður sækist eftir; Fyrirsjáanleiki, stöðugleiki og samfelldni. Ekkert af þessu mun nást með Íslenskri krónu, gjaldmiðli með innbyggða sjálfstortímingarhvöt. Náum stöðugleika og segjum: JÁ til að sJÁ. Höfundur er cand. oecon og MBA.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar