Skoðun

Rífum í lóðin

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Við í nýjum meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar ætlum ekki að bíða eftir betri tímum. Við ætlum að skapa þá.

Eitt af okkar fyrstu verkum á nýju kjörtímabili er að halda hjóli atvinnulífsins gangandi og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu. Þess vegna höfum við tekið upp nýtt fyrirkomulag við greiðslu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda.

Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða úrræði af þessu tagi.

Með breytingunni verður hægt að dreifa greiðslum á allt að fjóra gjalddaga yfir allt að 24 mánuði og, þar sem það á við, tengja greiðslur við verkáfanga.

Þetta er ekki niðurfelling gjalda og ekki afsláttur. Þetta er sveigjanlegri og sanngjarnari leið til að standa við greiðslurnar.

Við teljum skynsamlegt að greiðslubyrðin geti fylgt raunverulegri framvindu framkvæmda. Fyrstu skref byggingarframkvæmda geta verið fjárfrek, á sama tíma og tekjur af verkefninu hafa ekki enn orðið til. Með meiri sveigjanleika gefst verkefninu svigrúm til að komast af stað og halda áfram.

Fyrir alla

Mikilvægt var fyrir okkur að þetta úrræði yrði ekki aðeins fyrir stærstu verktakana. Sama meginregla gildir um einstaklinginn sem er að byggja sitt eigið heimili, fyrirtækið sem er að reisa nýtt húsnæði og stærri uppbyggingaraðilann.

Þetta snýst um jafnræði og skýrar leikreglur.

Fjölskylda sem er að byggja sitt fyrsta heimili á ekki endilega mikið laust fé á fyrstu stigum framkvæmdarinnar. Fyrirtæki sem er að byggja nýtt húsnæði þarf að geta stýrt lausafé sínu í takt við framvindu verksins.

Þegar greiðslubyrðin getur fylgt verkáföngum verður auðveldara að hefja framkvæmdir og halda þeim gangandi.

Og þegar framkvæmdir fara af stað verða til störf, viðskipti og verðmæti.

Það er gott fyrir Hafnarfjörð.

Ábyrgð og uppbygging fara saman

Við erum því ekki að velja á milli ábyrgðar og uppbyggingar. Við getum gert hvort tveggja.

Það er sú nálgun sem nýr meirihluti í Hafnarfirði vill standa fyrir: að bregðast við raunverulegum aðstæðum með lausnum sem eru bæði sanngjarnar og fjárhagslega ábyrgar.

Við viljum ekki að lóðir standi óhreyfðar þegar hægt er að hefja framkvæmdir. Við viljum ekki að góð verkefni tefjist vegna þess að greiðslubyrðin fellur á óheppilegum tímapunkti.

Því þegar hús rísa verða til heimili, störf og fyrirtæki. Þá vex bærinn okkar og atvinnulífið fær nýtt líf.

Nú rífum við í lóðin.

Höfundur er formaður Skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðar.




Skoðun

Sjá meira


×