Innlent

Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Dr. Gunnar Þór Pétursson er deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík.
Dr. Gunnar Þór Pétursson er deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík. Vísir/Vilhelm/Aðsend

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágúr í boði við aðild vera ranga. Einn prófessorana segir blaðið leggja sér orð í munn. 

Á forsíðu Morgunblaðsins í morgun er haft eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, talsmanni samtakanna Áfram Ísland og fyrrverandi forseta Íslands, að utanríkisráðuneytið sé orðið að „áróðursdeild“. Í undirfyrirsögn segir svo „Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur vera í boði“. 

Þar er verið að vísa til álits sem dr. Gunnar Þór Pétursson, dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson og dr. Margrét Einarsdóttir, prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík, gerðu að beiðni forsætisráðuneytisins. 

Fréttin á forsíðu Morgunblaðsins.

Engin dæmi en ekki ómögulegt

Gunnar Þór segir í samtali við fréttastofu að í álitinu sé hvergi sagt að engar undanþágur væru í boði. 

„Það er ekkert sem útilokar að hægt sé að fá bæði varanlegar og tímabundnar undanþágur í aðildarsamningum. Aðildarsamningar eru þjóðréttarsamningar og þetta er þá pólitískt málefni hvað hægt er að ná fram þar. Við bendum líka á það í álitinu að þegar að verið er að meta hvað hafi fengist í fortíðinni, þá þurfum við líka að horfa til þess hvað hafi verið farið fram á. Og ekkert ríki hefur verið farið fram á undanþágu frá sjávarútvegsstefnunni í heild sinni og þess vegna eru engin slík dæmi,“ segir Gunnar Þór.

Leggi þeim orð í munn

Á síðu fjögur í blaðinu er haft eftir Heiðrúnu Lind Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að í álitinu segi prófessorarnir að það sé ekki raunhæft að ætla að við fáum varanlegar undanþágur. 

„Við gerum ekkert slíkt mat hvort eitthvað sé raunhæft eða óraunhæft, við segjum bara að það hefur engin þjóð farið fram á undanþágu frá stefnunni í heild sinni en tökum hins vegar dæmi um fjölmargar varanlegar og tímabundnar undanþágur sem hafa fengist. Þú getur ekki ályktað frá því að ef enginn hafi farið fram á eitthvað þá sé ekki hægt að ná því í framtíðinni,“ segir Gunnar Þór.

Morgunblaðið hafi farið fram úr sér og leggi þeim orð í mun.

„Þetta er ósönn framsetning á álitsgerðinni og til þess fallið að afvegaleiða málefnalega umræðu,“ segir Gunnar Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×