Sport

Bein út­sending frá Reykja­víkur­mara­þoninu

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Myndin er frá Reykjavíkurmaraþoninu árið 2018.
Myndin er frá Reykjavíkurmaraþoninu árið 2018. Vísir/Vilhelm

Yfir fimmtán þúsund keppendur eru skráðir í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins á morgun og hafa safnast 268 milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér fyrir neðan má fylgjast með beinni útsendingu frá maraþoninu.

Fjórar vegalengdir eru í boði, heilt maraþon, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ræsti í morgun klukkan 8:15 keppnisflokk í hálfu og heilu maraþoni. Skemmtiskokkið verður ræst í hádeginu klukkan 12. Tímataka stoppar kl 15:30.

Ný hlaupaleið var kynnt í júní og verður rásmark hlaupsins nú við Háskóla Íslands. Hlaupið hefst fyrir utan Háskóla Íslands, á Sæmundargötu. Allar vegalengdir hefjast á sama stað og enda svo á Geirsgötu.

Hér má sjá hlaupaleiðar, drykkjarstöðvar og hvatningarstöðvar.Reykjavíkurmaraþon

Víða eru götur lokaðar vegna maraþonsins en nánari götulokanir má sjá hér

Sjá einnig: Víð­tækar götulokanir á nýrri hlaupa­leið Reykjavíkurmaraþons




Fleiri fréttir

Sjá meira


×