Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Ljósið 21. ágúst 2026 16:17 Frá hlaupinu í fyrra. Það er alltaf góð stemning hjá stuðningsliði Ljóssins. Öflugir hópar og einstaklingar hlaupa til styrktar Ljósinu í Reykjavíkurmaraþoni á morgun. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. „
Reykjavíkurmaraþonið er okkar stærsta einstaka fjáröflun og skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Það sem mun safnast í ár munum við nýta í nýja húsnæðið sem við erum að fara að flytja í til að gera það bæði fallegt og faglegt,“ segir Regína Björk Jónsdóttir þjónustu-og samskiptastjóri Ljóssins. Meðal hópa sem hlaupa til styrktar miðstöðinni eru þjálfarar Ljóssins, stórfjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn, ungir fótboltastrákar sem hlaupa fyrir pabba vinar þeirra og starfsfólk Avians. Hóparnir hafa búið til skemmtileg myndbönd sem sjá má hér fyrir neðan. Þjálfarar Ljóssins ,,Á hverjum degi í Ljósinu fáum við þjálfararnir þann heiður að ganga við hlið fólks sem er að byggja upp þrek og virkni eftir krabbameinsgreiningu. Við sjáum ótrúlegan kraft hjá Ljósberum okkar sem mæta og rækta heilsuna á sínum eigin forsendum. Í ár ákváðum við að taka sjálf sprettinn og hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu til að styðja við þetta mikilvæga starf. Við mætum ekki bara til að hlaupa, heldur ætlum við að færa Ljósastemninguna út á götur borgarinnar og drita út hlýju og hvatningu til allra annarra hlaupara sem verða með okkur á brautinni!," segir Guðrún Erla Þorvarðardóttir íþróttafræðingur. Karfarnir ,,Stórfjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn þar sem afi og amma bjuggu ætlar að reima á sig hlaupaskóna. Ein okkar stendur í stórræðum og hefur Ljósið reynst henni og hennar nánustu vel. Við viljum því sýna þakklæti okkar í verki og söfnum áheitum fyrir Ljósið með því að hlaupa öll sem eitt, hvert á eigin forsendum og dekkum allar vegalengdir hlaupsins. Aldursbilið er breitt, yngsti þátttakandi er ekki orðinn 1 árs og sá elsti 77 ára. En saman náum við markinu og styðjum í leiðinni okkar konu við að ná sínu marki og við Ljósið í þeirra mikilvæga starfi." Ungir fótboltastrákar Stjörnustrákar hlaupa fyrir Ljósið og pabba vinar síns. ,,Fyrir stuttu greindist Baba, pabbi vinar okkar með mjög alvarlegt 4. stigs krabbamein og stendur fjölskyldan nú frammi fyrir risastóru verkefni sem enginn óskar sér að takast á við. Ísak er einn af okkar bestu vinum og við óskum þess svo innilega að allt muni ganga vel fyrir fjölskylduna. Agnes og Baba eru frábærir foreldrar og eru alltaf á hliðarlínunni að klappa okkur strákana áfram, nú viljum við klappa þau áfram! Flest okkar þekkja einhvern sem hefur notið þjónustu Ljóssins og því langar okkur að leggja okkar af mörkum til þessa mikilvæga starfs. Við skorum líka á fleiri vini okkar að koma með og skrá sig," segir Hilmar Örn Darrason. Avians Um 70 starfsmenn frá fyrirtækinu Avians ætla að hlaupa saman fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst. Við vitum ekki til þess að jafn stór hópur hafi áður hlaupið saman fyrir góðgerðarfélag í maraþoninu, þvílíkur heiður! Hópurinn sameinast um eitt markmið: að styðja við starf Ljóssins og leggja sitt af mörkum til þeirra sem leita hingað. Tengingin við Ljósið er mismunandi, sum eiga aðstandendur eða samstarfsfélaga sem hafa leitað hingað og önnur hafa sjálf nýtt sér þjónustuna. Eitt eiga þau öll sameiginlegt, Ljósið á sérstakan stað í hjarta þeirra Hér er að finna leiðbeiningar um hvernig heita má á hlaupara og hópa.
Reykjavíkurmaraþon Krabbamein Heilsa Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira