Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 20. ágúst 2026 21:28 Skjáskot úr umræddu myndbandi. Otzma Yehudit Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.
Myndbandið, sem tekið var upp á ótilgreindum stað og birt af flokknum hans Otzma Yehudit, sýnir ráðherrann benda á grunn mannvirkisins og lýsa því yfir að þar verði „hryðjuverkamenn teknir af lífi“. Lofaði verri aðstæðum fanga Ráðherrann segir aðstöðuna verða búna sérstökum áhorfendaklefum þar sem aðstandendur fórnarlamba hryðjuverka geti fylgst með aftökunum. Í myndbandinu, sem birt var á samfélagsmiðlum, hælist Ben-Gvir um af byggingunni. „Ég lofaði að gera aðstæður hryðjuverkamanna í fangelsum verri, það höfum við gert,“ sagði hann meðal annars samkvæmt umfjöllun Guardian. Lögin gilda ekki um gyðinga Bygging þessa gálga kemur í kjölfar þess að ný lög voru samþykkt á ísraelska þinginu fyrr á þessu ári sem kveða á um að Palestínumenn sem sakfelldir eru fyrir hryðjuverk fyrir herdómi verði teknir af lífi innan níutíu daga. Lögin gilda ekki um gyðinga sem sakfelldir eru fyrir áþekka glæpi. Lögin hafa verið sökuð um að vera í eðli sínu mismunandi, þar sem sérstakt ákvæði verndar í reynd ísraelska gyðinga fyrir dauðarefsingu. Lögin aðeins yfir manndráp framin í þeim yfirlýsta ásetningi að „afneita tilvist Ísraelsríkis“, sem gerir það að verkum að þau eiga nær eingöngu við um Palestínumenn. Snörukaka á fimmtugsafmælinu Myndbandið af gálgasvæðinu kemur fram á sama tíma og vaxandi alþjóðleg gagnrýni beinist að framgöngu Ísraels í garð Palestínumanna, þar á meðal vegna útboða fyrir hina umfangsmiklu E1-landtökubyggð utan við Jerúsalem. Kaka sem borin var fram í fimmtugsafmælisveislu ráðherrans.X Ben-Gvir, sem hefur gegnt embætti þjóðaröryggisráðherra frá 2022 að undanskildu tveggja mánaða hléi í fyrra, á sjálfur að baki sakfellingar fyrir hvatningu til kynþáttahaturs og stuðning við hina bönnuðu Kach-hreyfingu Meirs Kahane. Í maí síðastliðnum fagnaði hann fimmtugsafmæli sínu með köku skreyttri mynd af snöru.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira