Formúla 1

„Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“

Andri Broddason skrifar
Max Verstappen ætlar að klára ferilinn sinn hjá Red Bull
Max Verstappen ætlar að klára ferilinn sinn hjá Red Bull Beata Zawrzel/NurPhoto via Getty Images

Í morgun var tilkynnt að Max Verstappen hefði framlengt samning sinn við Red Bull í Formúlu 1. Á blaðamannafundi eftir tilkynninguna sagði Verstappen að hann hefði frekar hætt frekar en að skipta um lið.

Max Verstappen hefur hugsað mikið um framtíðina sína á þessu tímabili þar sem hann er ósammála vegferðinni sem nútíma Formúlu 1 bílar eru að fara. Einnig hefur Red Bull bíllinn ekki verið jafn hraður og oft áður sem getur tekið á.

Fyrri samningur Verstappen var í gildi til ársins 2028 en nýr samningur bætti við tveimur árum í viðbót. Verstappen er því samningsbundinn Red Bull til ársins 2030.

Nýjar vélar ekki slegið í gegn

Í byrjun tímabils voru settar nýjar vélar í Formúlu 1-bílana þar sem rafmagnsmótor skilaði meiri krafti en hinn hefðbundni bensínmótor í bílnum. Það skilaði því að oft kláraðist rafmagnið í bílunum og lítill kraftur var eftir í bílunum.

Stjórn Formúlu 1 er að vinna í að breyta reglunum svo bílarnir missi ekki nær allan kraft á hröðustu köflum brautarinnar.

Í byrjun tímabils vildi Verstappen ekki tala um framtíð sína þar sem hann var ekki sjálfur viss hvað hann vildi gera. Hann komst þó loks að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að hann vilji halda áfram.

„Ég er ekki rosalega ánægður með Formúlu 1-bílinn eins og hann er núna. En ég elska enn kappakstur og þetta er enn Formúlu 1-bíll.“

Ætlar að klára ferilinn hjá Red Bull

Við þessa niðurstöðu vaknaði spurningin hvort hann ætlaði að halda áfram hjá Red Bull eða verða hluti af öðru liði. Mercedes hefur lengi sýnt mikinn áhuga á að fá Verstappen til sín og hans helsti samstarfsmaður hjá Red Bull, Gianpiero Lambiase, er á leiðinni til McLaren. En á endanum var ákvörðunin að halda áfram hjá Red Bull.

„Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið. Red Bull leyfir mér að gera aðra hluti utan Formúlu 1 sem er stór plús.“

Max Verstappen hefur verið hluti af Red Bull-liðinu síðan árið 2014 og hjálpaði liðið honum að fá sæti í Formúlu 1. Markmið hans er og hefur verið að klára ferilinn sinn hjá Red Bull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×