Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar 19. ágúst 2026 15:00 Það er alltaf svolítið varasamt að bjóða fólki upp í dans með stórum orðum. Sérstaklega þegar maður hefur gleymt að reima á sig skóna. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, skrifar grein undir fyrirsögninni „Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin“. Þar dregur hann upp mynd af íslenskum stórfyrirtækjum, ekki síst sjávarútvegsfyrirtækjum, sem hafi einhvern veginn fengið að „flýja krónuna“, velja sér evruna, njóta lágra vaxta og skilja venjuleg íslensk heimili eftir í krónuhagkerfinu. Hann gengur raunar svo langt að segja að þetta snúist um „völd og vilja fárra til að viðhalda þeim völdum“ og kallar almenning „þolendur þessa fyrirkomulags“. Loks kemur erindið í ljós: „Fyrsta skrefið í því er að segja Já 29. ágúst.“ Þetta er vissulega ágæt pólitísk saga. Vandinn er bara að reikningsskilareglurnar, gjaldeyrisáhættan og meira að segja eldri skrif Þórðar Snæs sjálfs neita að taka þátt í henni. Stór íslensk fyrirtæki gera ekki einfaldlega upp í evrum af því að þeim finnst evran svo miklu skemmtilegri en krónan. Fyrirtæki sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum þurfa að fylgja IAS 21 við ákvörðun starfrækslugjaldmiðils. Þar er meginreglan sú að starfrækslugjaldmiðill sé sá sem hefur mest vægi í rekstri fyrirtækisins. Það er að segja, fyrirtæki með mest af sínum tekjum í evrum eða Bandaríkjadal ber hreinlega að gera upp í þeirri mynt. Íslenski löggjafinn tók sérstaklega á þessu árið 2013 þegar 8. gr. ársreikningalaga var breytt. Í lögskýringargögnunum er tekið af allan vafa um hvað reglurnar þýða: „Í staðlinum kemur fram að félagið hafi ekki frjálst val um ákvörðun á starfrækslugjaldmiðli.“ En greinargerðin gengur lengra. Þar segir að miða skuli starfrækslugjaldmiðil við efnahagsumhverfi félagsins og meðal annars horfa til þess hvaða gjaldmiðill hafi mest áhrif á söluverð, rekstrarkostnað og fjármögnun. Breytingin var sérstaklega gerð til samræmis við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Þetta er því ekki séríslensk regla sem var fundin upp fyrir útgerðina eða önnur íslensk fyrirtæki, svo sem Landsvirkjun eða Landsnet sem vel að merkja gera upp í Bandaríkjadal.Ætlar Þórður Snær að halda því fram að Landsvirkjun sé að ræna íslensk heimili eða að íslenskur almenningur sé þolandi Landsvirkjunar? Varla. Dollarinn fyrir útgerðina, einhver? Frá árinu 2009 og út árið 2025 var starfrækslugjaldmiðill Síldarvinnslunnar ekki evra. Hann var bandaríkjadalur og ástæðan var einföld. Stærstur hluti uppsjávarafurða var seldur í USD, verð á mjöli og lýsi ræðst að stórum hluta af heimsmarkaðsverði í USD og olíukaup, stærsti gjaldaliðurinn fyrir utan laun, eru verðlögð í USD. Svo breyttist fyrirtækið. Tekjur í evrum jukust, meðal annars með auknum bolfiskheimildum. Breytingin var framkvæmd samkvæmt IAS 21. Síldarvinnslan vaknaði ekki einn morguninn og ákvað að „flýja í evruna“. Efnahagsumhverfi fyrirtækisins breyttist og starfrækslugjaldmiðillinn fylgdi á eftir. Það er nákvæmlega það sem lög um reikningsskil boða. Og hvað með Icelandair, Alvotech, ríkisfyrirtækið og svissneska frankann? Ef þetta snýst allt um að hin útvöldu stórfyrirtæki fái að „velja evruna fyrir sig“, þá kemur dálítið vandræðaleg spurning: Hvers vegna velur Icelandair þá ekki evruna? Starfrækslugjaldmiðill Icelandair Group er bandaríkjadalur. Sama má segja um Alvotech. Enn annað dæmi er Oculis með samstæðureikningsskil og starfrækslugjaldmiðil í svissneskum frönkum. Meira að segja Oculis Iceland hefur CHF sem starfrækslugjaldmiðil. Besta dæmið er ef til vill ríkisfyrirtækið Landsvirkjun – sem gerir upp í bandaríkjadal. Þetta er því ekki krónan er fyrir almenning en evran fyrir hina útvöldu. Þetta snýst um hvaða gjaldmiðill endurspeglar efnahagsumhverfi viðkomandi rekstrar. Reyndar vissi Þórður Snær þetta ágætlega þegar hann fjallaði um málið árið 2023. Þá skrifaði hann að 248 íslensk félög hefðu fengið heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt. Athyglisverðara er að 93 prósent þeirra sem gerðu upp í erlendri mynt gerðu upp annaðhvort í evru eða Bandaríkjadal. Dollarinn hentar bara verr í fyrirsögnina „Að velja evruna fyrir sig“. Erlent lán getur minnkað áhættu. Eða skapað hana. Þórður Snær skrifar sjálfur um Ísfélagið: „Það er fullkomlega eðlilegt og skynsamlegt að fyrirtæki sem hefur tekjur sínar í erlendum gjaldmiðlum reyni að fjármagna sig í sama gjaldmiðli. Það lækkar áhættu.“ Já akkúrat. En þarna hefði kannski verið ágætt að stoppa í smástund áður en næsta málsgrein var skrifuð. Fyrirtæki sem fær stóran hluta tekna sinna í evrum og tekur lán í evrum er að samræma gjaldmiðil tekna og skulda. Það getur minnkað gjaldeyrisáhættu þess. Íslenskur launamaður sem fær launin sín í krónum, á fasteign á Íslandi og tekur húsnæðislán í evrum er að gera hið gagnstæða. Hann er að búa til gjaldeyrisáhættu sem margir supu seyðið af haustið 2008. Og Þórður Snær veit þetta vel og þess vegna er grein dagsins svo sérkennileg. Þann 12. desember 2012 skrifaði Þórður Snær um mögulega veikingu krónunnar: „Slík veiking myndi hafa áhrif á getu þeirra sem eru með tekjur í íslenskum krónum að ráða við erlendar skuldir sínar.“ Nákvæmlega. Þórður Snær ársins 2012 skildi grundvallaratriðið sem Þórður Snær ársins 2026 þarf nú að horfa fram hjá til þess að samanburðurinn við Ísfélagið virki: Gjaldmiðill teknanna skiptir máli. Það er ekki smá tæknilegt aukaatriði. Það er ástæðan fyrir því að evrulán útflutningsfyrirtækis með evrutekjur og evrulán íslensks heimilis með krónutekjur eru tveir gjörólíkir hlutir. Það fyrra getur verið áhættuvörn. Það síðara getur verið gjaldeyrisáhætta. Það má gagnrýna íslensku krónuna. Það má færa sterk rök fyrir evru. Það má vilja ganga í Evrópusambandið. Og auðvitað má kjósa já 29. ágúst. En sé ætlunin að sannfæra fólk um að gera það, þá ætti lágmarkskrafan að vera að röksemdirnar standist skoðun. Það gerir þessi samanburður ekki. Íslensk stórfyrirtæki hafa ekki fengið einhver sérstök forréttindi til að velja sér evruna vegna þess að hún er þægilegri. Starfrækslugjaldmiðill þeirra á að endurspegla efnahagsumhverfi þeirra. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar krefjast þess. Íslensku ársreikningalögin voru sérstaklega færð til samræmis við þær reglur. Og lögskýringargögnin segja beinlínis að fyrirtæki hafi ekki frjálst val um ákvörðun starfrækslugjaldmiðils. Og fyrirtæki sem tekur skuld í sama gjaldmiðli og það aflar tekna í er ekki í sambærilegri stöðu við heimili sem skuldar í erlendum gjaldmiðli en aflar allra tekna sinna í krónum. Þetta veit Þórður Snær. Hverjir eru þá þolendurnir? Þórður Snær lýkur grein sinni með því að kalla almenning „þolendur þessa fyrirkomulags“. Ef við viljum ræða hvers vegna vextir eru háir á Íslandi væri kannski nær að ræða verðbólgu, ríkisfjármál, peningastefnu, vöxt hins opinbera, skattheimtu, launa- og verðmyndun, húsnæðismarkað og þá fjölmörgu þætti sem raunverulega móta vaxtastig og kaupmátt. En útflutningsfyrirtæki sem fylgir reikningsskilareglum um starfrækslugjaldmiðil er ekki að ræna íslenska heimili evrunni. Icelandair er ekki að halda Bandaríkjadollaranum frá almenningi. Oculis Iceland hefur ekki lagt svissneska frankann undir sig. Fyrirtækin eru að fylgja reglum sem um starfsemi þeirra gilda. Þórður Snær lýkur sinni grein á ákalli um að segja já 29. ágúst. Ég ætla ekki að segja fólki hvort það eigi að segja já eða nei. En ég myndi leggja til eitt áður en gengið er að kjörborðinu: Segjum já við því að lesa smáa letrið og nei við innihaldslausu orðasalati. Því stundum reynist stórkostleg saga um „evruna fyrir elítuna og krónuna fyrir okkur hin“ vera bara þurri reikningsskilastaðallinn IAS 21. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Steingrímsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun