Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Kjartan Kjartansson skrifar 19. ágúst 2026 10:32 Gas vellur upp í sjónum í Eystrasalti eftir sprengingarnar í Nord Stream-gasleiðslunum. Skemmdarverkin ollu stærsta metanleka í sögunni. AP/sænska landhelgisgæslan Úkraínskur kafari var handtekinn í Króatíu í dag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream-gasleiðslunum í Eystrasalti fyrir fjórum árum. Framselja á manninn til Þýskalands.
Maðurinn, sem þýsk yfirvöld nafngreina sem Vladímir Z., var handtekinn í Pula við Adríahaf. Króatískir lögreglumenn tóku hann fastan á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar, að sögn AP-fréttastofunnar. Þýsk yfirvöld segja að maðurinn sé þjálfaður kafari og að hann hafi verið hluti af hóp sem kom fyrir sprengjum á Nord Stream 1 og 2 nærri Borgundarhólmi í september árið 2022. Maðurinn sé sterklega grunaður um að hafa valdið sprengingunum og skemmdarverkunum. Annar Úkraínumaður var ákærður í Þýskalandi í tengslum við skemmdarverkin í síðasta mánuði. Sá er fyrrverandi liðsforingi í úkraínska hernum. Hann er meðal annars ákærður fyrir hlutdeild í stríðglæpum með því að ráðast á borgaralega innviði. Nord Stream-leiðslurnar tvær fluttu og áttu að flytja jarðgas frá Rússlandi til meginlands Evrópu. Þegar skemmdarverkin voru framin var ekki búið að taka aðra þeirra í notkun og Rússar höfðu skrúfað fyrir hina eftir að evrópsk ríki beittu þá refsiaðgerðum vegna innrásar þeirra í Úkraínu rúmu hálfu ári áður. Skemmdarvargarnir sigldu á lítilli skútu sem þeir leigðu að gasleiðslunum. Kafarar í hópnum komu svo fyrir sprengjum á þeim. Hópur úkraínskra herforingja og kaupsýslumanna er sagður hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin. Volodýmýr Selenskí, forseti, hafi upphaflega lagt blessun sína yfir þau en síðar viljað hætta við. Skipuleggjendurnir hafi hins vegar haldið ótrauðir áfram.
Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Króatía Þýskaland Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira