Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Kjartan Kjartansson skrifar 19. ágúst 2026 15:00 Stjörnufræðingar fylgdust með S301 á braut um Sagittarius A* með VLT-sjónaukanum í Síle. ESO/GRAVITY collaboration Stjarna sem gengur á ógnarhraða þétt upp við risasvartholið í miðju Vetrarbrautarinnar gæti gert vísindamönnum kleift að mæla snúning svarthols í fyrsta skipti. Með því gætu þeir látið verulega reyna á almennu afstæðiskenningu Einsteins.
Aðeins tæpir 1,8 milljarða kílómetra skilja að stjörnuna S301 og risasvartholið Sagittarius A* í miðju Vetrarbrautarinnar okkar. Það er aðeins um fimmtungi lengra en vegalengdin á milli sólarinnar okkar og Satúrnusar og tólfföld fjarlægðin frá jörðu til sólar. Aldrei áður hefur stjarna fundist svo nálægt risasvartholi. Stjarnan nær um 25.000 kílómetra hraða á sekúndu þegar hún gengur hring eftir hring um svartholið á 8,7 ára fresti. Það er mesti hraði sem stjarna hefur mælst á í Vetrarbrautinni okkar, að því er segir í tilkynningu frá Evrópsku stjörnustöðinni á suðurhveli (ESO). Nálægð S301 við svartholið opnar spennandi möguleika fyrir stjörnufræðinga. Þeir geta reiknað út snúning svartholsins um sjálft sig út frá áhrifum hans á sporbraut stjörnunnar. Tiltölulega skammur umferðartími stjörnunnar um svartholið þýðir að þeir gætu lokið mælingunum á næstu tíu árum í stað þess að bíða í áratugi. „Án þessarar stjörnu hefðum við þurft að mæla hreyfingar stjarna í nokkra áratugi í viðbót til þess að komast einu sinni nálægt því að mæla snúning svarthols,“ segir Juan Osorno, stjörnufræðingur við LIRA-athuganastöðuna í París í Frakklandi. Almenna afstæðiskenning Alberts Einstein gerir ráð fyrir því að svarthol sem snýst dragi tímarúmið sjálft með sér og bjagi það. Beinar mælingar á snúningi svartholsins, sem er með massa á við um fjórar milljónir sóla, gætu reynt á kenninguna. Næst verður S310 í svartholsnánd árið 2031. Vísindamennirnir telja sig þurfa að fylgjast með að minnsta kosti tveimur heilum umferðum stjörnunnar um svartholið til þess að þeir geti ákvarðað snúning svartholsins með nákvæmni. Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega var misritað í henni að stjarnan næði 25.000 kílómetra hraða á klukkunstund en ekki sekúndu.
Geimurinn Vísindi Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira