Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 17. ágúst 2026 20:01 Í upphafi síðustu viku varð undirritaður 67. ára og var sagt að hann væri ekki lengur öryrki samkvæmt Tryggingastofnun (TR) heldur eldri borgari og ellilífeyrisþegi og fengi lægri framfærslu þar með. Þegar spurt var hverju þessi mikla skerðing sætti var svarið einfalt: þú ert orðinn 67. ára.Undirritaður kynnti sér málið og sá að Inga Sæland, sem er nákvæmlega viku eldri (3. ágúst sbr. Alþingisvef) væri heldur ekki lengur öryrki og væntanlega því ekki lengur blind. Ellilífeyrisþegi varð hún 3. ágúst. Ég hefði því átt að sleppa hækjunum 10. ágúst.Auðvitað á þetta ekki við um allt. Einstaklingur fær áfram aðstoð Sjúkratryggingum Íslands (SI), til dæmis hjálpartæki og ýmislegt annað sem tengist fötlun. Einstaklingur verður ekki heilbrigður þótt TR segir annað.Hingað til hefur Hæstiréttur leyft að einstaklingi sé breytt í ellilífeyrisþega við 67. ára aldur, þó hann sé áfram fatlaður. Þetta fyrirkomulag sparar TR um 100 þúsund krónur á mánuði í framfærslu. Því til nokkurs að vinna.Þetta er ekkert nýtt, þó undirritaður hafi ekki kynnst þessu fyrr en nú. Þetta er þekkt misræmi sem flestir hafa umborið. Sömu reglur eru um réttinn til ávinnings ellilífeyris og örorku, sem er í sjálfu sér mjög sérkennilegt og óeðlilegt. Menn þurfa að hafa búið hér í 40 ár, eða uppfylla ákveðin búsetuskilyrði fram að 67. ára aldri, til að fá fullan ellilífeyri og örorka viðkomandi endar þá. En þessi regla er látin gilda strax og jafnvel þótt örorka versni með tímanum. Íslendingar háðir TR verða ellilífeyrisþegar 67. ára með lægri framfærslu. Það virðist ekki skipta nokkru máli hvort viðkomandi er í hjólastól, lamaður eða blindur. Viðkomandi er einfaldlega ekki lengur öryrki í þessu kerfi. Fáir lögfræðingar vilja fara í mál við ríkið út af þessu, því hingað til hefur því alltaf verið haldið fram að almannatryggingalögin heimili þetta. Reynslan hefur jafnframt verið sú að þeir sem hafa farið með þessi mál fyrir dómstóla hafi tapað. Til að fá gjafsókn má einstaklingur ekki vera með meira en rúmar 3 milljónir í skattskildar tekjur. Hvernig hefur öryrki möguleika á að sækja rétt sinn þegar hæstaréttarlögmaður hefur sennilega milli 40 - 50 þúsund krónur í tímakaup.Ríkið skrifaði undir samning sameinuðuþjóðanna árið 2007, um réttindi og bann við mismunun gegn fötluðum, en hann var ekki lögfestur hér á landi fyrr en desember 2025 með lögum nr. 80/2025. Með viðauka sem virðist við fyrstu sýn banna að taka réttindi af fötluðum miðað við afmælisdag einvörðungu, enda við frekari hugsun fráleitt. Í lögum 80/2025 og viðauka er mismunun gagnvart fötluðu fólki óheimil.Hvernig getur það verið réttlætanlegt að einstaklingur sem er áfram fatlaður og jafnvel ver fatlaður með tímanum, sé allt í einu gerður að ellilífeyrisþega við 67. ára aldur og fái þar með lægri framfærslu. Styrkurinn frá TR kemur til, þar sem einstaklingur hefur engan eða lélegan lífeyrissjóð. Slíkt gerist af mörgu ástæðum, en m.a. vegna vanmáttar til að safna í lífeyrissjóð vegna fötlunar frá æsku, erfið fjölskyldu byrði vegna fötlunar ástvina og umönnunar, langrar skólagöngu og sennilega fjölda ástæðna. Lífeyrissjóður eða sjóðir duga því ekki til að tryggja lágmarks framfærslu einstaklingsins sem verður að treysta á TR að öllu leyti eða að stórum hluta.Full ástæða er að kanna hvort lög nr. 80/2025 hafi breytt réttarstöðu öryrkja. Verður TR ekki núna að hætta að meðhöndla fatlað fólk með þessum hætti, þ.e. skert framfærsla við afmælisdag, svo verulega munar og hæstiréttur að breyta túlkun sinni á hvað er rétt m.t.t. nýrra laga frá desember 2025. Full ástæða virðist á því við fyrstu sýn, en erfitt er fyrir einn öryrkja, svo ekki sé talað um með heildar árstekjur fyrir skatta upp á rúmar 3. milljónir að standa í slíku. Hver lifir af því? Annað af tveim skilyrðum fyrir gjafsókn. Þegar hefur verið farið í gegnum stjórnsýsluna, ráðuneyti, Úrskurðarnefnd velferðarmála og andsvara leitað frá TR í þessu máli. Niðurstaðan er samhljóma. Svona hefur þetta verið og svona skal það vera og Hæstiréttur hefur hingað til lagt blessun sína yfir málið. Það má meðhöndla fatlaða svona, afmælisdagurinn læknar.Næsta skref er því að reyna að fá lögfræðing til að taka málið að sér og kanna hvort hægt sé að fara með það fyrir dómstóla. Kanna þarf möguleikann á gjafsókn, en því miður er það þannig að öryrki, nú ellilífeyrisþegi sem misst hefur verulegan hluta framfærslu geti staðið straum af kostnaði við langvarandi dómsmál gegn ríkinu. Síðan þessi undarleg tekjumörk fyrir gjafsókn. Það er samt þvert á eðli undirritaðs að gefast upp. Þar spilar líka inn í óréttlæti gagnvart þeim sem nú þola og réttindi og meðhöndlun öryrkja sem enn eru ekki orðnir 67. ára. Uppgjöf er ekki í myndinni. Blindir fá ekki sjón þegar þeir verða 67 ára. Fatlaðir geta ekki bara hent hækjunum. Geti undirritaður ekki fengið gjafsókn í prinsipmáli gegn íslenska ríkinu og hvaða lög gilda, kemur upp í hugann vettvangur eins og Karolína fund eða kannski er einhver önnur leið. Nú virðist loksins lögfest að réttar skerðing fatlaðra eða bati getur ekki tengst afmælisdegi. Slíkt væri fáránlegt. Undirritaður þiggur allar góðar ábendingar en þarfnast ekki hvatningar. Hér fyrir neðan eru því ábendingar um hvernig benda má undirrituðum á leiðir til að sækja málið. Ef einhver telur sig hafa lausn eða hluta lausnar, eru hér að neðan upplýsingar hvernig koma má þeim á framfæri. Vinsamlegast skrifa alltaf í “Subject” eða “Viðfangsefni email”: GJAFSÓKN - Örorka eða ellilífeyrir - 67. ára afmæli. Höfundur er hagfræðingur og líffræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tryggingar Eldri borgarar Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun