Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar 17. ágúst 2026 19:02 Árið 1955 sendi írski rithöfundurinn Leonard Wibberley frá sér skáldsöguna The Mouse That Roared. Þar segir af hertogadæminu Grand Fenwick, örríki í Ölpunum sem lendir í fjárkröggum þegar Kaliforníumenn fara að framleiða eftirlíkingu af eina útflutningsvarningi þess, víninu Pinot Grand Fenwick. Ráðamenn finna snjalla lausn. Þeir segja Bandaríkjunum stríð á hendur, ætla sér að tapa því með sóma á fyrsta degi og bíða síðan eftir endurreisnaraðstoðinni sem sigurvegarinn er vanur að ausa yfir óvini sína sem hann hefur sigrað. Áætlunin var í sjálfu sér ekki galin. Hún gekk einfaldlega út frá því að andstæðingurinn hefði einhvern hernaðarmátt og fjármagn. Nú er komið fram á árið 2026 og Íslendingar hafa talsvert endurbætt þessa sögu. Í stað þess að fara í stríð til að tapa því er leitað skjóls hjá bandalagi sem á sér engan her og hefur, þrátt fyrir rúmlega þriggja áratuga tilraunir, ekki tekist að koma sér upp svo miklu sem einni herdeild sem það ræður yfir sjálft. Þetta er sögulegt afrek. Grand Fenwick lét sér nægja að misreikna mátt andstæðingsins. Íslenska utanríkisráðuneytið misreiknar mátt verndarans. Því er haldið fram, og það af mikilli alvöru, að öryggishagsmunir Íslands kalli nú á aðild að Evrópusambandinu. Menn hlusta á þetta á opinberum fundum, kinka kolli og velta fyrir sér hvenær orrustuþotu var síðast flogið undir fána ESB? Svarið er aldrei. Sambandið á sér vissulega ákvæði, 7. málsgrein 42. greinar sáttmálans um Evrópusambandið, þar sem aðildarríkin heita hvert öðru aðstoð verði ráðist á þau með vopnavaldi. Það sem síður kemur fram í kynningarbæklingunum er að í sömu málsgrein stendur, svart á hvítu, að fyrir þau ríki sem eru í Atlantshafsbandalaginu sé það bandalag áfram grundvöllur sameiginlegra varna þeirra og vettvangur framkvæmdar þeirra. Með öðrum orðum: sá sem er í NATO nýtur verndar NATO. Sá sem gengur að auki í ESB nýtur áfram verndar NATO. Eini ávinningurinn er ný stofnun ESB til að funda um málið. Ísland hefur verið í Atlantshafsbandalaginu frá 1949 og haft varnarsamning við Bandaríkin frá 1951. Hvorugt hefur breyst. Það sem hefur breyst er að ráðherra þarf ný rök fyrir 29. ágúst og að hin gömlu rök, um fiskinn og krónuna, vexti og verðbólgu hafa reynst þyngri í meðförum en ætlað var. Þá er gott að eiga varaskeifu. Öryggismálin eru sú varaskeifa. Fáir þora að spyrja nánar út í þau, því sá sem spyr hvar herinn sé má búast við að vera sagður skilja ekki „breytta heimsmynd“. Sá skilningur virðist aðallega felast í því að skynja her þar sem enginn er her. Í sögu Wibberleys fer allt öðruvísi en ætlað var. Innrásarliðið, rúmlega tuttugu bogmenn í brynjum, gengur á land í New York meðan borgin er mannlaus vegna loftvarnaæfingar, rambar þar á vísindamann með nýja gereyðingarsprengju og snýr heim sem sigurvegari. Grand Fenwick lendir óvart í hlutverki stórveldis og þarf að glíma við það vandamál hvernig smáþjóð beitir valdi sem hún ætlaði sér aldrei að öðlast. Sá endir bíður ekki íslenskra aðildarsinna. Hér gengur enginn á land með nýja sprengju. Hér verður undirritað, sent til Brussel og síðan beðið eftir hernum sem aldrei kemur, af þeirri einföldu ástæðu að hann er ekki til. Það má vel vera að einhverjum þyki þetta óþarfa kaldhæðni. Þá er rétt að minna á að skáldsagan var skrifuð sem gamanmál. Íslenska útgáfan er borin fram í fullri alvöru af utanríkisráðherra lýðveldisins, jafnvel með glærum. Þar liggur munurinn á háði og stjórnarstefnu. Í háðinu veit höfundurinn hvað hann er að gera, hinn ekki. Liðsmenn Grand Fenwick voru að minnsta kosti með bogana með sér og í brynjum. Höfundur er læknir og sjáfskipaður fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Bandaríkin Írland Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun