Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver og Yrsa Rós Brynjudóttir skrifa 18. ágúst 2026 07:45 Það er verulegt áhyggjuefni hvernig umræðan um námsmat og einkunnagjöf í íslenskum grunnskólum hefur þróast. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur kynnt að breytt verður frá núverandi einkunnakerfi, A, B+, B, C+, C og D, yfir í einkunnir í tölustöfum frá 1–10 og rökstutt breytinguna meðal annars með því að auðveldara verði fyrir nemendur og foreldra að skilja einkunnir og námsmat. Miðað við þann kvarða sem hefur verið gefinn út falla tölurnar 1-4 niður svo kvarðinn er í raun frá 5-10. Þörfin fyrir skýrleika er eðlileg og sjálfsögð. En það að skipta út hvernig námsmat er fram sett gerir námsmat ekki sjálfkrafa skýrara. Mikilvægari spurning er: Hvað segir námsmatið okkur í raun um nám barnsins? Í Víkurskóla höfum við unnið markvisst með leiðsagnarnám og er það sú kennslunálgun sem er sett fram í menntastefnu Reykjavíkurborgar. Við vinnum stöðugt með námsmarkmið, árangursviðmið og endurgjöf með það í huga að nemendur viti hvað þeir eru að læra, hvernig þeir nái árangri, hvar þeir standa hverju sinni og hvert næsta skref þeirra er. Með stöðugu námsmati og reglulegri endurgjöf vita nemendur hvar þeir standa í hverri námsgrein og, ekki síður, hvað þeir geta gert til að bæta sig. Námsmatið felst meðal annars í sjálfsmati, fróðleiksvitum (e. knowledge organizer), endurgjöf frá nemendum og á kennsluháttum sem byggja á áratuga rannsóknum á leiðsagnarnámi. Þarna liggur kjarni málsins: Námsmat er aðeins gagnlegt ef upplýsingar liggja fyrir um námið sem býr að baki. Tala kann að virðast einföld, en hvað þýðir 7 í raun? Byggist hún á einu prófi, mörgum verkefnum, stærra verkefni, vinnu í kennslustundum eða blöndu af þessu öllu? Hver er raunverulegur munur á 7 og 8? Myndu allir kennarar leggja sama mat á námsárangurinn? Ef námsmat í tölustöfum hefur ekki skýra, sameiginlega og gagnreynda merkingu getur það gefið falska mynd af raunstöðu nemanda. Harvard Graduate School of Education gerir greinarmun á námsmati og einkunnagjöf. Námsmat getur veitt nemendum upplýsingar sem hjálpar þeim að skilja eigið nám og sjá hvert næsta skref er, á meðan einkunn er í grunninn samantekt á heildarmati (Harvard Graduate School of Education, 2023). Að breyta B í 7 skapar því ekki meiri skýrleika. Tákninu er einfaldlega breytt. Þetta skiptir sérstaklega máli því aðalnámskrá íslenskra grunnskóla byggir á hæfni og hæfniviðmiðum, þar sem námsmat tengist því sem nemendur kunna, skilja og geta gert. Jafnframt er lögð áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir og áreiðanlegar upplýsingar um nám nemenda (Mennta- og barnamálaráðuneytið, 2026). Gæði námsmats ræðst því af þeim gögnum og faglega mati sem liggur að baki, ekki einfaldlega af því hvort lokaniðurstaðan er bókstafur eða tala. Ef foreldrum finnst erfitt að skilja námsmat ber okkur að taka það alvarlega. En það eru margar leiðir til að gera námsmat skýrara: betri upplýsingagjöf til foreldra t.d. með námsumsjónarkerfi sem er einfalt í notkun, skýrari og nemendavænni árangursviðmið, betra samræmi og samstarf milli kennara og skóla og aukin starfsþróun á sviði námsmats. Það eru raunverulegar umbætur. Að endurnefna einkunnakvarða eru ekki raunverulegir umbætur. Menntastefna og umbætur í skólastarfi eiga ekki að gerast fyrir kennara heldur með kennurum. Kennarar eru fagfólk sem tekur flóknar ákvarðanir um nám og námsframvindu á hverjum degi. Við sjáum framfarir sem ekki verða alltaf fangaðar í einu prófi og vitum að nám er margbreytilegt og flóknara en ein tala á vitnisburði. Ákvörðun ráðherra getur breytt einkunnakerfi á skömmum tíma; að byggja upp samræmda og faglega námsmatsmenningu á landsvísu tekur hins vegar mörg ár. Á sama tíma blasir við mun brýnna verkefni í skólum landsins: skortur á nýjum og vönduðum námsgögnum. Í maí 2026 greindi RÚV frá því að fjárframlög til þróunar og kaupa á námsgögnum hefðu lækkað niður í aðeins 39% af því sem þau voru árið 2007, á sama tíma og kennarar verja verulegum tíma í að útbúa eigið námsefni (Brynjólfur Þór Guðmundsson, 2026). Jafnframt segir í aðalnámskrá að námsefni skuli vera fjölbreytt, vandað og byggja á nýjustu þekkingu á sviði menntunar og kennslu (Mennta- og barnamálaráðuneytið, 2026). Vandaðar kennslubækur og gott námsefni eru hluti af grunninnviðum öflugs menntakerfis. Nemendur á Íslandi eiga að hafa aðgang að nýlegu, aldurssamsvarandi og vönduðu fræðilegu námsefni á íslensku í öllum námsgreinum. Kennarar eiga ekki að þurfa að verja ótal klukkustundum í að leita að efni, uppfæra úrelt, þýða eða hanna nýtt námsefni frá grunni einfaldlega vegna þess að viðeigandi íslenskt námsefni er ekki til. Við í Víkurskóla erum stolt af því námsefni og samþættingu námsgreina sem við höfum þróað. Sköpunarkraftur og frumkvæði kennara á hins vegar að styrkja gott námsefni, ekki bæta upp fyrir skort á því. Fagmennska kennara er ein verðmætasta auðlind menntakerfisins. Tíma kennara ætti að nýta í að greina nám nemenda, skipuleggja góða kennslu, veita endurgjöf og styðja við nemendur, ekki í að finna sífellt upp hjólið og búa til námsgögn sem ættu nú þegar að vera til. Ef okkur er í alvöru annt um að bæta íslenskt menntakerfi þurfum við að spyrja hvort það sé í raun brýnasta forgangsverkefnið að breyta matskvarðanum. Myndi nám íslenskra barna batna meira við það að skipta út bókstöfum fyrir tölur? Eða við það að tryggja að allir nemendur og kennarar hafi aðgang að nýlegu, vönduðu námsefni á íslensku? Það er spurning sem vert er að ræða. Nýsköpun og starfsþróun eru órjúfanlegur hluti af starfi okkar í Víkurskóla. Við fögnum umræðu um námsmat og viljum taka þátt í henni af fagmennsku og opnum huga. Slík umræða verður hins vegar að byggjast á gögnum, fagþekkingu og röddum kennara, nemenda og foreldra. Við eigum að spyrja hvað muni raunverulega bæta nám og kennslu, ekki hvað sé einfaldast að útskýra. Að breyta A í 10, B+ í 9 eða B í 8 er fyrst og fremst yfirborðsbreyting. Það eru ekki umbætur í menntun. Raunverulegar umbætur í menntakerfinu bæta nám og kennslu, tryggja kennurum nauðsynleg úrræði, tíma, faglegt traust og sjálfstæði, veita nemendum gagnlega endurgjöf og tryggja skólum aðgang að nýlegu og vönduðu námsefni á íslensku. Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu. Þeir eiga skilið að vita hvað þeir eru að læra, hvar þeir standa og hvert næsta skref þeirra er. Þeir eiga einnig skilið kennara sem hafa tíma, faglegt sjálfstæði og nauðsynleg úrræði, þar á meðal góð námsgögn til að hjálpa þeim að ná árangri. Það eru þær umbætur sem íslenskt menntakerfi ætti að leggja áherslu á. Höfundar eru kennarar við Víkurskóla í Reykjavík. Heimildir:Brynjólfur Þór Guðmundsson. (22. maí 2026). Námsgögn skorin niður um áratuga skeið - RÚV.is. RÚV. Harvard Graduate School of Education. (2023). The problem with grading. Harvard Graduate School of Education. Mennta- og barnamálaráðuneytið. (2026). Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun