„Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 14:11 Stjörni-Sævar þakkar fyrir allar þær kveðjur og hrósin sem hafa rignt yfir hann síðastliðna daga. SÝN Stjörnu-Sævar er hvergi nærri hættur þó að almyrkvi á sólu verði ekki hér á landi næst fyrr en eftir 170 ár. Hann ætlar til Spánar á næsta ári að freista þess að sjá næsta almyrkva á sólu á Jörðinni í heiðskíru en hann mun standa yfir í 4 mínútur og 30 sekúndur. „
Ég er hvergi nærri hættur, allir þeir myrkvar sem ég get mögulega elt ætla ég svo sannarlega að gera. Þannig ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera 12. ágúst 2045 sem dæmi,“ segir Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar. Næst á eftir almyrkvaferðinni til Suður-Spánar verði förinni heitið til Ástralíu árið 2028, Namibíu árið 2030 „og 2033, ætli maður fari ekki til Alaska eða eitthvað svoleiðis,“ segir Sævar. En fyrst hafi hann samþykkt að fara í langþráð frí til Tenerife. Auðvitað sé stórkostlegast að sjá almyrkvann í öllu sínu veldi og því vonast hann til þess að sjá næsta myrkva í heiðskíru. „Fjórar gullfallegar mínútur og þrjátíu gullfallegar sekúndur“ „Nú er maður búinn að fá að upplifa allar týpur af almyrkvum, hvernig þeir geta verið bæði í heiðskíru, hálfskýjuðu og í rigningu. Það sem er bara ótrúlega magnað er að þetta er allt saman algjörlega stórkostlegt og glæsilegt. Auðvitað er stórkostlegast þegar maður sér dýrðina í öllu sínu veldi en að almyrkvi í rigningu geti verið svona magnaður styrkir mann náttúrulega enn þá frekar í þeirri skoðun að þetta sé langstórkostlegasta sýningin sem náttúran býður upp á,“ segir Sævar. Almyrkvinn á Spáni muni vara í „fjórar gullfallegar mínútur og þrjátíu gullfallegar sekúndur“ þann 2. ágúst 2027. Myrkvinn muni einnig sjást vel frá norðurströnd Afríku og á Arabíuskaganum. Lengstur verði myrkvinn í Lúxor á Egyptalandi en þar sem hann er lengstur, í sex mínútur og 23 sekúndur. Undirbýr hópferð fyrir Íslendinga til Spánar Hann sé þegar byrjaður að vinna í því að undirbúa hópferð fyrir Íslendinga sem hafa áhuga á að slást með í för. Margir hafi sent honum skeyti og lýst yfir áhuga sínum. Almyrkvinn á sólu þann 2. ágúst 2027 verður lengstur í Lúxor í Egyptalandi, sex mínútur og 23 sekúndur. Sævar Helgi Bragason „Þetta er svona í samvinnu við væntanlega Icelandair og Icelandair Vita. Vonandi náum við að koma því í kring. Ég get ekki lofað neinu af því að það er ekki búið að taka neina ákvörðun. En við eigum fund í næstu viku og vonandi verður það bara staðfest.“ Hann hafi fengið vilyrði fyrir hótelherbergjum syðst á Spáni, skammt frá Gíbraltar, fyrir áhugasama Íslendinga, en allt sé enn í vinnslu. „Ég hef fengið tugi skilaboða frá fólki þannig að ég er alveg handviss um að það sé leikandi hægt að fylla allavega eina flugvél til að fara og vonandi bara fleiri,“ segir Sævar. Íslendingar virðast loksins vera komnir með almyrkvadelluna eftir að hafa upplifað almyrkvann á sólu hérlendis á miðvikudaginn síðastliðinn. „Nú líður mér loksins, loksins eins og einhver skilji mig eftir áralangar tilraunir,“ segir Sævar og hlær. „Það er svolítið magnað þegar að búinn að vera í næstum því þrjú ár svona pínu hrópandi í eyðimörkinni og enginn stökk á vagninn fyrr en náttúrulega bara alveg í lokin. Svo fær fólk í fyrsta skipti að upplifa þetta og þá náttúrulega kemst bara að því hvað þetta er algjörlega magnað og stórfenglegt.“ Sævar vill þakka fyrir allar þær kveðjur og hrósin sem hafa rignt yfir hann síðastliðna daga. Mikil vinna hafi farið í að fræða og undirbúa fyrir almyrkvann. Hann þakkar öllum þeim sem keyptu gleraugu og varning, sem hafi þó því miður ekki nýst, enda sé allt hans starf fjármagnað af honum sjálfum. „Mér þykir alveg ótrúlega vænt um það enda held ég að ég hafi aldrei lagt ég að ég hafi aldrei lagt jafn mikið á mig eins og undanfarin tvö ár í að reyna að fá fólk til þess að horfa upp. Og það að hafa tekist er eiginlega bara hálfgert kraftaverk.“ Deildarmyrkvi á tungli þann 28. ágúst næstkomandi Ekki þurfi að bíða lengi eftir næsta undri á himni sem sést hér á landi en þann 28. ágúst næstkomandi sjáist tunglmyrkvi frá Íslandi. Deildarmyrkvinn verður í hámarki klukkan korter yfir fjögur aðfararnótt miðvikudagsins 28. ágúst. Í heild stendur tunglmyrkvinn yfir í 5 klst 38 mínútur og 31 sekúndu en þar af stendur deildarmyrkvinn yfir í 3 klst 18 mínútur og 48 sekúndur. Meira má lesa um deildarmyrkvann á tungli þann 28. ágúst hér. „Þetta verður mjög djúpur deildarmyrkvi, þannig að það er bara nyrsti parturinn af tunglinu sem stendur upp úr alskugga jarðar og neðri parturinn verður rauðleitur að sjá, sem er svona næstum því blóðmáni eins og stundum er kallað. Það er óskaplega fallegt þegar allar sólarupprásir og öll sólsetur á jörðinni lýsa tunglið og gefa því svona rauðleitan blæ.“ Eins og gefur að skilja þurfi engin gleraugu til þess að fylgjast með tunglmyrkvum en mjög fallegt sé að fylgjast með tunglinu með sjónaukum eða einfaldlega með augunum.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Spánn Geimurinn Ferðalög Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Fleiri fréttir Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Sjá meira