Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Kjartan Kjartansson skrifar 14. ágúst 2026 08:32 Verkamenn vinna við að styrkja landamæragirðingu á milli spænsku borgarinnar Ceuta og Marokkó. Vísir/EPA Spænsk og marokkósk yfirvöld eru í viðbragðsstöðu fyrir helgina ef til þess kemur að mannfjöldi reyni aftur að komast inn í spænsku borgina Ceuta á strönd Norður-Afríku. Hvatning til þess er sögð í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Skilaboðin sem ganga manna á milli á samfélagsmiðlum í Marokkó ganga út á að landamærin að Ceuta, spænsku yfirráðasvæði við Miðjarðarhafsströnd Marokkó, verði opin á morgun, laugardag, þar sem þá sé hátíðsdagur á Spáni. Tugir þúsunda förufólks fór ólöglega inn í Ceuta dagana 30. og 31. júlí. Um fimm þúsund þess er sagt enn í spænsku borginni. Spænsk stjórnvöld vinna enn að því að vísa þeim frá borginni. Spænska blaðið El País segir að marokkósk yfirvöld hafi brugðist við kallinu eftir nýju áhlaupi á Ceuta með því að senda hundruð hermanna að landamærunum og koma fyrir hindrunum og tálmum við þau. „Það hefur verið gripið til allra nauðsynlegra aðgerða til þess að koma í veg fyrir allar tilraunir til þess að fara ólöglega yfir landamærin og stöðva hvern þann sem reynir að taka þátt í því,“ hefur blaðið eftir Rachid el Jalfi, talsmanni marokkóska innanríkisráðuneytisins. Fernando Grande-Marlaska, spænski innanríkisráðherrann, sendi þau skilaboð til förufólksins að enginn fái að verða um kyrrt í Ceuta og að enginn fái að komast þaðan upp á meginland Spánar. Flóttamannastraumurinn til Ceuta hefur valdið nokkrum titringi í Evrópu. Ítölsk stjórnvöld komu upp landamæraeftirliti fyrir ferðalanga frá Spáni en spænska ríkisstjórnin svaraði í sömu mynt. Fulltrúar spænskra stjórnvalda hafa fullyrt að engin hætta steðji að Schengen-svæðinu vegna fjöldaflóttans inn í Ceuta. Enginn hafi komist þaðan til Íberíuskaga handan Miðjarðarhafsins frá borginni.
Marokkó Spánn Innflytjendamál Tengdar fréttir Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar. 10. ágúst 2026 08:41 Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku. 8. ágúst 2026 10:14 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira
Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar. 10. ágúst 2026 08:41
Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku. 8. ágúst 2026 10:14