Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 14:09 Karl Bretakonungur er, eftir því sem fréttastofa kemst næst, enn á lífi. EPA Fjölmiðlaeftirlitsstofnunin Ofcom telur útvarpsstöðina Radio Caroline hafa brotið útsendingarreglur þegar tilkynnt var ranglega í miðri útsendingu að Karl Bretakonungur væri látinn.
Þann 19. maí var útsending Barry Marsh-þáttarins rofin og þrjú innslög, sem höfðu verið tekin upp áður, spiluð. Þar kom fram að fréttamiðlar hefðu staðfest andlát konungsins, þjóðsöngur Breta spilaður og síðan sextán mínútna þögn á útsendingartíðni DAB+ en hlustendur á AM-tíðninni heyrðu í tónlist. Þrjátíu mínútum síðar var beðist afsökunar á tilkynningunni. Í úrskurði Ofcom, sem BBC greinir frá, segir að þegar starfsmaðurinn sem spilaði óvart upptökurnar uppgötvaði hvað hafi gerst „panikkaði hann og yfirgaf húsnæðið“. Með spiluninni hefði Radio Caroline brotið reglu 5.1 sem kveður á um að fréttir séu fluttar með tilhlýðilegri nákvæmni og reglu 5.2 sem segir að leiðrétta skuli verulegar villur tafarlaust. Starfsmaðurinn hafi spilað upptökurnar af forvitni en fyrir mistök tekið yfir útsendinguna. Stjórnandi Barry Marsh-þáttarins hafi ekki tekið eftir mistökunum þar sem hann stjórnaði útsendingunni annars staðar frá líkt og sé algengt á útvarpsstöðinni. Stjórnandi útvarpsstöðvarinnar hafi verið í símanum þegar mistökin urðu en varð var við þau þegar hann heyrði einungis tónlist á AM-tíðninni í stað þáttarins. Stutt afsökunarbeiðni var send út og sögð vera vegna tæknilegra örðugleika. Tekið var fram að einungis tvær kvartanir hefðu borist vegna útsendingarinnar. Stöðin var stofnuð árið 1964 og voru allar útsendingar sendar frá skipi þar til árið 1991. Sjálfboðaliðar koma að henni og er henni útvarpað til miðhérðanna og Suður-Englands.
Karl III Bretakonungur Kóngafólk Bretland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Sjá meira