Sport

Einar bætti sig í hundrað metra bringu­sundi á EM

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einar Margeir í lauginni á síðasta ári.
Einar Margeir í lauginni á síðasta ári. mynd/sundfélag Akraness

Einar Margeir Ágústsson átti besta sund Íslendinganna á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi.

Einar synti á 1:00.87, tæpri hálfri sekúndu hraðar en hans besti tími frá því í fyrra. Hann hafnar i í 33. sæti af 71 keppanda í greininni.

Snæfríður Sól synti 100 metra skriðsund á 55,72 sekúndum og varð í 35. sæti af 54 keppendum.

Hólmar Grétarsson synti 400 metra fjórsund í morgun á 4:29.65 og hafnaði í 23. sæti af 26 keppendum.

Í 100 metra skriðsundi syntu einnig Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero. Jóhanna synti á 56,79 sekúndum og Vala á 56,95 sekúndum.

Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius kepptu í 50 metra flugsundi og syntu á 24,60 sekúndum og 24,70 sekúndum.

Snorri Dagur Einarsson synti 100 metra bringusund á 1:02,20,

Keppni heldur áfram á morgun en þá keppa Jóhanna í 50 metra flugsundi, Birgitta Ingólfsdóttir í 100 metra bringusundi og Guðmundur Leo Rafnsson í 200 metra baksundi en átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×