Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Rafn Ágúst Ragnarsson og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 31. júlí 2026 18:59 Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri hefur stýrt aðgerðum á vettvangi. Vísir/Viktor Freyr Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir allan 21 áhafnarmeðlim Bandero hafa stöðu grunaðs fyrir hættubrot. Skipstjóri, fyrsti stýrimaður og fyrsti vélstjóri voru teknir í skýrslutöku í dag.
Áhöfn Bandero dúsar nú um borð í skipinu sem liggur í Sundahöfn. Landhelgisgæslan fóru um borð í það á fullri ferð í gærkvöldi eftir að hvalveiðimenn kölluðu eftir hjálp. Athygli vakti það nú síðdegis að þrír skipverjar hver í sínu lagi voru færðir á brott af lögreglu. Þar var um að ræða þá þrjá sem lögregla telur ganga í stafni fyrir skipinu og bera meiri ábyrgð en óbreyttur áhafnarmeðlimur. Alls konar brot koma til greina Aðspurður segir Ásgeir að rannsókn málsins snúi að gruni um hættubrot. „Þarna er talið að liðsmenn þessara samtaka hafi reynt að kasta netum og einhverju járn- eða vélarrusli sem að átti að lenda í skrúfu skipsins Hvalur níu. Og ef að það hefði tekist að þá er mjög líklegt að það hafi orðið stjórnlaust skip úti á hafi. Það er auðvitað einhverjar hættulegustu aðstæður sem sjómenn geta lent í,“ segir hann. „Síðan erum við auðvitað með lög um Landhelgisgæsluna. Því er skylt að hlusta á rás 16. Öllum sjófarendum er skylt að hlusta á þá rás. Þá er öllum skylt að fara eftir fyrirmælun Landhelgisgæslunnar og það er í almennum hegningarlögum að óheimilt er að tálma vinnu þeirra sem fara með lögregluvald. Þetta er svona brot af því sem við erum með til umfjöllunar,“ segir hann svo. Ólíklegt að fari verði fram á gæsluvarðhald Lögregla hefur til rúmlega ellefu í kvöld til að ákveða hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum áhafnarliðanna. Ásgeir segist ekki telja það líklegt. Öllum skipverjum hafi verið meinuð landganga og dúsa þeir því um borð. „Greinargerð er farin til Útlendingastofnunar þar sem lögregla óskar eftir því að þessu fólki verði brottvísað með endurkomubanni. Það er mjög íþyngjandi aðgerð en 14 af þessum 21 eru ekki af Schengen-svæðinu sem þýðir að þeim yrði meinuð innganga á Schengen-svæðið í tvö ár,“ segir Ásgeir. Hann segir að lögregla stefni að því að klára bráðarannsóknarvinnuna í kvöld, taka af öllum áhafnarmeðlimum skýrslu og afgreiða það sem nauðsynlegt er að afgreiða á þessu stigi málsins fyrir lok kvöldsins. Viðvera lögreglu við höfnina muni minnka samhliða því.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira