Innlent

Bandero hrellir Hval 9

Jón Þór Stefánsson skrifar
Hvalur 9. Myndin er úr safni.
Hvalur 9. Myndin er úr safni. Vísir/Arnar

Bandero, skipið sem hefur undanfarnar vikur verið undan lögsögu Íslands og er í eigu Paul Watson-samtakanna, er nú að reyna að stöðva hvalveiðiskipið Hval 9.

Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, en gat ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.

Hvalur 9 er nú á sjó norður af Garðsskaga, samkvæmtMarine Traffic.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er reyna skipverjar Bandero að kasta neti í í skrúfu Hvals 9. Þá mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera á vettvangi að gera tilraunir til að vísa Bandero á brott.

Fréttin hefur verið og verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×