Staðan orðin „þokkalega góð“ Agnar Már Másson skrifar 30. júlí 2026 12:35 Tekist hefur að fanga einhverja minka. Engir féllu í gildrur fyrir utan öryggisgirðinguna í nótt. Vísir/Lýður Valberg Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að vel hafi gengið að fanga minka sem sluppu úr Dalsbúi í gærmorgun eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Verkefni dagsins í dag sé að fá tölu á þá minka sem sluppu út en þeir kunna að vera í þúsunda tali. Flestir minkanna hafa ekki vogað sér út fyrir öryggisgirðinguna við búið.
Rúmlega tíu gildrum var komið fyrir víða í Mosfellsdal í gærkvöldi í von um að fanga minka sem höfðu sloppið úr Dalsbúi í gær eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Enn er óljóst hversu margir minkar sluppu en Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að einhver fjöldi minka hafi verið fangaður í gildrur sem næst eru minkabúinu, en engir minkar hafi ratað í gildrurnar sem settar voru fyrir utan öryggisgirðingu við búið. Að neðan má sjá myndefni frá aðstæðum í gær. „Staðan virðist vera orðin þokkalega góð, við fengum færri ábendingar í nótt en við bjuggumst við,“ segir Hilmar, sem tekur fram að aðeins ein marktæk ábending hafi borist um mink utan girðingarinnar. „Við höfum líka fengið ábendingar allt niður í Grafarvog og Grafarholt en ég held að það tengist ekki þessu máli. En það er gott að fólk sé á varðbergi.“ Keyrt var á einn mink í nótt. „Það var bara svona lán í óláni myndi ég segja,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfelssbæjar.Samsett Minkur hefur ekki verið fangaður í þéttbýli í Mosfellsbæ en í tilkynningu frá bæjarfélaginu eru íbúar í næsta nágrenni við minkabúið beðnir um að láta börn ekki sofa úti í barnavögnum á næstu dögum. Samantekt úr sjónvarpsfréttum Sýnar þar sem rætt var við eiganda búsins. Í dag er unnið að því að fá nákvæma tölu á þá minka sem sluppu en sá fjöldi hefur verið á reiki. Ríflega tíu þúsund minkar voru á Dalsbúi, samkvæmt því sem eigandi búsins sagði í gær, og talið er að einhver þúsund hafi sloppið. Þeir minkar sem finnast utan girðingarinnar eru aflífaðir af sóttvarnarástæðum. „Það er verkefni dagsins að ná að telja inn í búrin og sjá þá hvað hefur sloppið og hverjir eru dauðir. Við verðum að fá betri yfirsýn yfir það þegar líður á daginn.“
Loðdýrarækt Mosfellsbær Minkum sleppt í Mosfellsdal Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira