Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. júlí 2026 21:27 Bogi Nils er sáttur með Airbus þotuna. Að tveimur árum liðnum verður fjöldi Airbus-þotur Icelandair orðnar tuttugu. Samsett Icelandair hefur undirritað leigusamninga fyrir sex Airbus A320neo flugvélar og heldur þannig áfram færslu sinni frá Boeing-flugvélum yfir í Airbus. Vélarnar verða komnar í þjónustu félagsins fyrir sumarið 2028 og verða Airbus-vélar félagsins þá orðnar tuttugu alls.
Vélarnar verða teknar á leigu hjá flugvélaleigusalanum Aircastle. Áður hafði verið tilkynnt um fjórar flugvélar af sömu tegund frá leigusalanum AviLease sem bætast við flotann á næsta ári, vorið 2027. Félagið rekur þegar sjö Airbus-vélar og von er á þremur A321LR-vélum, brakandi ferskum úr verksmiðjum Airbus-flugvélaframleiðandans í vetur. „LR“ í nafni vélanna stendur fyrir „long range“ og bjóða vélarnar því upp á aukna drægni miðað við A320neo-vélarnar sem minnst var á í upphafi fréttarinnar. Munurinn í drægni er um 500 sjómílur eða tæpir þúsund kílómetrar. A321neo-vélar munu geta þjónað áfangastöðum í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna og áfangastöðum í Bandaríkjunum norðaustanverðum auðveldlega. Á sama tíma munu A321LR-vélar með lengri drægni sinni mögulega geta opnað á nýja áfangastaði, líkt og Phoenix í Arizona, en flugleiðin þangað er um 6400 kílómetrar. Þegar félagið bætti fyrst við sig A321LR-vél fyrir tæplega tveimur árum bættist Miami við á heimskorti félagsins en ekki hefur verið tilkynnt um fleiri fjarlæga áfangastaði síðan þá. Vinna staðfastlega að endurnýjun flotans Icelandair heldur með þessu áfram endurnýjun flugflota síns. Tilkynnt hefur verið að félagið muni leggja flugvélatýpurnar Boeing 757 og 767 endanlega af í janúar 2027. Félagið hefur síðustu ár haft nokkrar 767 vélar í rekstri, sem eru litlar breiðþotur, en það verður sannarlega sögulegt þegar félagið leggur síðustu 757 vélinni. Vélarnar hafa síðustu áratugi verið hryggjarstykkið í flota félagsins en framleiðslu þeirra var hætt árið 2004. Nýju vélarnar munu gera Icelandair kleift að bjóða upp á meiri þægindi fyrir farþega með betri hljóðvist og loftgæðum. Þá eru þær eyðslugrennri þegar kemur að þotueldsneyti sem hefur jákvæð áhrif á efnahagsreikning og kolefnisfótspor félagsins. „Við höldum áfram að fjárfesta í umfangsmikilli endurnýjun flugflotans og fögnum nýju samstarfi við Aircastle og AviLease. Á næsta ári munum við ná þeim merka áfanga að allt farþegaflug félagsins verður flogið á nýrri kynslóð flugvéla sem nýta allt að 30% minna eldsneyti á hvert sæti en eldri tegundir. Jafnframt styður flotaendurnýjunin við markmið okkar um að efla leiðakerfið, einfalda flotann og veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ferðaupplifun,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu.
Flug Airbus Icelandair Keflavíkurflugvöllur Ferðaþjónusta Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Sjá meira