Kröfur umboðsmanns Salah valda vandræðum Valur Páll Eiríksson skrifar 28. júlí 2026 22:47 Mohamed Salah leitar enn nýs félags. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Stjórnendur hjá tyrkneska liðinu Besiktas vonast til að komast að samkomulagi við Egyptann Mohamed Salah um að leika með liðinu. Háar kröfur umboðsmanns leikmannsins um kjör í eigin vasa hafa valdið vandræðum. Vera má að Salah endi í Bandaríkjunum.
Salah er laus allra mála eftir að hafa yfirgefið Liverpool í sumar eftir níu tímabil í Bítlaborginni þar sem Egyptinn skoraði 257 mörk í 442 leikjum. Þessi 34 ára kantmaður íhugar nú næstu skref og Besiktas er sagt leiða kapphlaupið. Eitthvað hefur hins vegar hægt á viðræðum milli liðanna og er krafa Ramy Abbas, umboðsmanns Salah, um 7,5 milljónir evra í eigin vasa sögð standa í stjórnarmönnum hjá tyrkneska liðinu. Íþróttastjóri félagsins, Önder Özent, segir Besiktas hafa sent lokatilboð til Abbas og Salah. Því tilboði verði að taka eða hafna, og Besiktas muni stíga frá samningsborðinu fari svo að því verði hafnað. Özent segir viðræður hafa staðið yfir um hríð, að allt hafi gengið vel á þremur fundum með Salah, en strax og fundað var um peningahliðina hafi hægst töluvert á. „Besiktas mun ekki leggja fram annað tilboð. Þeir hafa sagst vera í viðræðum við önnur félög, og kannski munu þeir komast að samkomulagi þar. Þetta tilboð er það síðasta sem Salah fær, það verður ekki annað, og ekki tilboð sem mun fórna gildum Besiktas,“ segir Özent. „Allt gekk vel fram til 21. Júlí en þá fór að hægja á. Besiktas mun því draga sig í hlé frá og með deginum í dag. Við þekkjum gildi Besiktas og að halda í grunngildi félagsins er okkur mikilvægt, töluvert mikilvægara en að semja við góðan íþróttamann.“ Það virðist því sem Besiktas hafi gott sem gefist upp á samningaviðræðunum. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa gripið tíðindin á lofti og að þau ýti undir líkur á því að Salah fari í MLS-deildina vestanhafs. Sporting Kansas City er þar efst á lista, en félagið hefur lengi leitað sinnar fyrstu ofurstjörnu og sagt reiðubúið að reiða fram töluvert hærri fjárhæðir til að lokka Salah til félagsins en Besiktas. Fenebahce, granni Besiktas í Istanbúl, er sagt hafa áhuga sem og Al-Ittihad og Al-Ahli í Sádí-Arabíu. Atlético Madrid á Spáni var einnig orðað við Salah fyrr í sumar.
Tyrkneski boltinn Bandaríski fótboltinn Liverpool FC Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira