Akureyringur gafst ekki upp og hafði betur gegn flugrisa Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júlí 2026 16:55 Aðalsteinn má vera stoltur af baráttu sinni fyrir hönd neytenda. Koma verður í ljós hvort flugfélagið geri breytingar á mæligrind sinni víðar en á Gatwick-flugvelli í London. Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið EasyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur.
Aðalsteinn Svan Hjelm lýsir hremmingum sínum og baráttu í færslu á Facebook frá því í maí síðastliðnum þegar hann var á leiðinni frá London til Grikklands með flugfélaginu EasyJet. Þau voru stöðvuð við hlið flugfélagsins á Gatwick-flugvelli og beðin um að setja handfarangurstöskur sínar í málmgrind til að staðfesta að hún væri innan stærðarmarka. „Þarna var búið að kalla út í vél, allir komnir í röð og hver fyrir sig beðinn um að máta handfarangurinn,“ segir Aðalsteinn í samtali við Vísi. Um var að ræða Samsonite-handfarangurstösku sem Aðalsteinn segist hafa ferðast með víða um heim án vandræða. En ekki í þetta skiptið. Taskan passaði ekki í grindina. Var hann krafin um greiðslu sem nam um sextán þúsund krónum samanlagt fyrir tvær töskur og skipti engu um mótmæli hans. „If it does not fit, you pay!“ Honum hafi fundist þetta allt svo undarlegt. Allir voru látnir setja farangurinn í mæligrindina, starfsfólkið var svo strangt og enginn að nenna að tala við hann. „Auðvitað gefst maður upp og borgar til að missa ekki af vélinni,“ segir Aðalsteinn. Með óbragð í munni sneri hann við í rananum og fékk leyfi til að taka myndir af mæligrindinni. Svo var flogið til Grikklands. Gekk ekki upp Þetta gekk ekki upp í huga Aðalsteins sem ákvað að taka myndir af öllu og hóf daginn eftir formlegt kæruferli hjá EasyJet sem er eitt stærsta flugfélag heimsins. Málmgrindin gæti ekki verið í réttri stærð. Það skilaði engu og heldur ekki kvörtun til Gatwick-flugvallar sem annaðhvort gat ekki eða vildi ekki aðhafast. Að lokum fór málið til óháðs úrskurðaraðila sem hafnaði einnig kröfu hans. Enginn aðili tók til greina að hreinilega mæla málmgrindina til að komast að því hvort hún væri af réttri stærð. Hann var ekki tilbúinn að kyngja því og fann áhugaverðar greinar sem vörpuðu ljósi á að easyJet hafði útvistað umræddri þjónustu til verktaka. Tekjur hans voru árangurstengdar að því leyti að því fleiri töskur sem kæmust ekki í grindina, því meiri tekjur. Því til viðbótar eru aukatekjur easyJet heilmiklar af hverri tösku sem reynist of stór. Aukagjöld af ýmsu tagi hafi numið verulegum hluta af heildartekjum easyJet á síðasta fjárhagsári samkvæmt ársreikningi félagsins. Ætlar með málið lengra Aðalsteinn ákvað að lokum að senda töluvpóst beint á stjórnendur easyJet og viti menn. Í kjölfarið hafði fulltrúi easyJet samband og sagði stálplötur hafa verið fjarlægðar úr farangursgrindunum eftir innri rannsókn. Hann fengi sextán þúsund krónurnar endurgreiddar. Aðalsteinn segir um ótrúlega niðurstöðu að ræða. Réttlætið hefði sigrað að lokum en hann ætli þó ekki að láta staðar numið. „Ég mun senda öll gögn áfram til neytendasamtaka í Bretlandi og nokkurra vel valinna fjölmiðla þar í landi, enda tel ég mikilvægt að upplýsa hvort fleiri farþegar hafi orðið fyrir sambærilegri meðferð. Þar verður eitthvað fjaðrafokið skal ég segja ykkur ef ég þekki Englendingana rétt!“ Fréttin er í vinnslu.
Flug Akureyri England Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Einungis sjö bílar kallaðir inn Kaupmáttur heldur áfram að aukast Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Sjá meira