Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar 28. júlí 2026 12:03 Stjórnsýslan setur sjókvíaeldi í fyrsta sæti Helga Vala Helgadóttir þáverandi þingmaður Samfylkingarinnar í minnihluta innviðaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í mars 2023: „Hagsmuna hverra er hæstv. ráðherra að gæta í þessu máli, sem nú skekur samfélagið fyrir austan?“ Í svari ráðherra kemur m.a. fram að skipulag sé bara plan og hafi verið unnið rétt. Í seinna andsvari ráðherra kemur m.a. fram að því miður hafi allar stofnanir „ ekki sinnt hlutverki sínu fram til þessa“. Sú er raunin enn í dag. Skv. svarinu vissi ráðherra mætavel að víða var pottur brotinn í gildandi leyfum til sjókvíaeldis og skipulagið sem hann samþykkti tók ekki á því. Stofnanir, sem ráðherra vitnar til í svari sínu, eru lögum samkvæmt ráðgefandi stofnanir við gerð strandsvæðaskipulags. Sjókvíaeldi er enn í andstöðu við gildandi lög og skipulag. Ráðherra átti að uppfylla stjórnsýslulög: „Stjórnvald skal sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.“ Spurningu Helgu Völu var ekki svarað, en það er augljóst hverra hagsmuna var og er gætt. Sjókvíaeldið á sviðið og er eini hagsmunaaðilinn í Seyðisfirði að mati stofnana. Áhættumat - umhverfismat Staðan í dag er sú að stjórnsýslan versnar. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun(hér eftir HMS), sem fer með skipulagsmál og umhverfismat, hefur beint því til sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur að láta gera áhættumat vegna hættu á slysasleppingum af völdum ofanflóða. Með því að beina áhættumatinu til Kaldvíkur er HMS að fara gegn markmiðum laga og hlutverki skipulagsstofnunar. Það er stór munur á áhættumati ofanflóða og umhverfismati. Áhættumat átti að liggja fyrir við gerð umhverfismats/skýrslu en ekki að vera til vinnslu í dag. Við gerð umhverfismatsskýrslu strandsvæðaskipulags Austfjarða lá fyrir að ekki má byggja mannvirki í Selstaðavík. Sörlastaðavík var talin líklega utan áhættusvæðis, en komið hefur í ljós að eldissvæði og mannvirki eru á bannsvæði byggingaleyfis. Umhverfismatsskýrsla var ekki unnin á réttan hátt í Seyðisfirði. Það er því algerlega óásættanlegt að HMS beini því til Kaldvíkur að láta vinna enn eitt áhættumatið, sem átti að liggja fyrir við gerð og samþykkt strandsvæðaskipulagsins. Það er engin lagastoð fyrir þessari ákvörðun HMS, sem er ráðgefandi fagstofnun við skipulagsgerð. Veðurstofa Íslands hefur sagt að hún hafi ekki ferla til að gera slíkt áhættumat, og að ofanflóðamat, sem hún vann fyrir Kaldvík, sé ekki unnið skv. ákvæðum úr skipulagi. Skipulagsstofnun taldi að nánara mat á náttúruvá vantaði í Seyðisfirði. HMS er ráðherra til aðstoðar við að framfylgja lögum um strandsvæðaskipulag. Í lögunum eru það fagstofnanir ríkisins, sem eru svæðisráði til ráðgjafar við skipulagsgerðina, ekki umsækjendur sjókvíaeldis. Með því að beina áhættumati til Kaldvíkur er HMS að fara gegn lögunum og svæðisráði, ábyrgðaraðila skipulagsins, sem ekki er starfandi. Þrír ráðherrar hafa farið með skipulagsmál í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, án þess að skipa nýtt svæðisráð fyrir Austfirði að loknum alþingiskosningum, eins og lög gera ráð fyrir. Er raunin e.t.v. sú að enginn fæst til að sitja í svæðisráði Austfjarða og bera ábyrgð á gildandi strandsvæðaskipulagi með 70 % eldissvæða ólöglega staðsett í öruggum siglingaleiðum. Vinna við leyfisveitingar er í gangi án þess að hægt sé að leita til svæðisráðs. Kaldvík hefur verulega hagsmuni af því að leyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði verði veitt. Áhættumöt umsækjenda eru ekki hlutlaus, og ekki í samræmi við skipulag. Áhættumat siglinga, unnið fyrir Kaldvík, samræmist ekki fyrra siglingaáhættumati Vegagerðarinnar fyrir Seyðisfjörð og siglingamötum á Vestfjörðum. Þrátt fyrir að áhættumöt hafi átt að liggja fyrir og áhættumöt, sem Kaldvík hefur látið gera samræmist ekki skipulagi, sjá aðstoðarmenn ráðherra, ráðuneyti og stofnanir ekkert athugavert við að fyrirtækið sjái um enn eitt áhættumatið, sem átti að liggja fyrir, og svara: Þið getið bara kært. Þegar ríkið hefur verið kært vegna sjókvíaeldis, er fyrsta vörn þess að krefjast frávísunar í stað þess að fá efnislega niðurstöðu og gæta jafnræðis. Lögmaður landeigenda bíður enn eftir svari við kröfum varðandi ólögmætt skipulag og áhættumöt, sem hún lagði fyrir ráðherra skipulagsmála á fundi 25. júní s.l. Það er augljóst hverra hagsmuna er gætt. Hagsmunaaðilar Það eru margir hagsmunaaðilar í Seyðisfirði. Ríkið sjálft er hagsmunaaðili með tvo stóra innviði í firðinum. Farice-1 strenginn og helgunarsvæði hans, sem er þjóðaröryggismál. Höfn í samevrópskaflutningsnetinu með ferjusiglingar til Evrópu í 50 ár. Að henni ber að tryggja siglingaröryggi skv. alþjóðlegum stöðlum. Ferðaþjónustuaðilar eiga hagsmuna að gæta vegna atvinnurekstrar í firðinum. Landeigendur, sem eiga lögvarinn rétt á 115 m netlögum. Eftir mælingu á stórstraumsfjöru í apríl 2025 er óumdeilt að skipulagið og fyrirhuguð starfsemi Kaldvíkur fer inn í netlögin. Þrátt fyrir það synjar HMS landeigendum í tvígang um aðild að byggingarleyfisumsókn um sjókvíaeldisstöð Kaldvíkur. Lögmaður landeigenda hefur lagt inn enn eina kæruna til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna höfnunar HMS á lögvörðum réttindum þeirra. Múlaþing, sem hefur skipulagsvald innan netlaga, tekur m.a. fram í sinni: · Tryggja þurfi vernd réttinda landeigenda og netlaga · Tryggja þarf siglingaöryggi og áhrif á ljósgeira vita ·Virða þarf helgunarsvæðis sæstrengs farice-1 Það er augljóst hverra hagsmuna HMS gætir. Hundsar rök landeigenda til lögvarins réttar og horfir ekki til umsagna Múlaþings, sem HMS kallaði eftir í mars. s.l. Til hvers var verið að kalla eftir þeirri umsögn? Forsætisráðherra verður að taka á ólögmætinu Stjórnsýsluhraðlest núverandi ríkisstjórnar brunar óhindruð áfram. Ráðherrar, sem sjókvíaeldismálið varðar, hafa ekki kjark til að stoppa vitleysuna. Það stefnir allt í stórhættulegt stjórnsýsluslys, sem ríkið þarf að taka á sig. Skv. lögum um umhverfisábyrgð fellur allt tjón vegna náttúruhamfara á ríkið. Forsætisráðherra, þú ert yfirlestarstjóri og berð ábyrgð á stjórnsýslulögum, sem verið er að margbrjóta í Seyðisfirði. Forsætisráðherra þarf að stíga inn og sjá til þess að jafnræðis sé gætt. Það er ekki bara umsækjandi um sjókvíaeldi, sem hefur hagsmuna að gæta. Hagsmunir geta víða komið fram ef stórt umhverfisslys verður af völdum náttúruhamfara í Seyðisfirði. Leyfisveitendur hundsa landeigendur, íbúalýðræði(75% Seyðfirðinga), þjóðaröyggi, siglingaöryggi, öryggi vegna náttúruvár, niðurstöðu á mælingu stórstraumsfjöru Náttúrufræðistofnuna, stjórnsýslulög, m.a. málshraða- rannsóknar- jafnræðis- og meðalhófsreglur, skýrslu Ríkisendurskoðanda o.fl. „Í umhverfismati skal greina, lýsa og meta, með tilliti til viðkomandi framkvæmdar eða áætlunar, bein og óbein umtalsverð áhrif á eftirfarandi umhverfisþætti:a. íbúa og heilbrigði manna“ Íbúalýðræðið hefur alfarið verið sniðgengið og ekki er farið að framangreindu úr umhverfislögum. Stjórnsýsla, sem virðir ekki náttúruna og samfélagið, er óboðleg. Ríkisstjórnin þarf að bregðast strax við og sýna að lögin í landinu séu virt og gildi fyrir alla og staðið sé við alþjóðlegar skuldbindingar, sem Ísland er aðili að. Það er óásættanlegt að almennum borgurum sé gert að leggja út í mikinn kostnað vegna kærumála þegar ráðherrar treysta sér ekki til fara að lögum, sem þeir bera ábyrgð á. „VÁ félag um vernd fjarðar“ var stofnað af hópi andstæðinga sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 75% íbúa eru á móti sjókvíaeldi í firðinum. VÁ, sem umhverfissamtökum, hefur oftast verið vísað frá í kærumálum vegna sjókvíaeldisins og landeigendur þurft að kæra til að fá aðild viðurkennda. Skipulagsstofnun benti á að andstaðan sé mikil og taka þurfi tillit til hennar. Stjórnsýsluruglinu verður að ljúka. Áhættumötum á ekki að vísa rangar hendur. Opinberar stofnanir eiga að vinna áhættumötin skv. lögum og á faglegan hátt. Það er ekki eðlilegt að stofnanir leyfisveitinga segi að leyfi séu í lögbundnu ferli innan stofnana, einu og hálfu ári eftir að frestur stofnananna til ákvörðunar á leyfisveitingu rann út skv. lögum. Tillögum að leyfisveitingum í Seyðisfirði bar að hafna á tilsettum tíma í febrúar 2025. Sjókvíaeldið kemst ekki fyrir og á ekki heima í Seyðisfirði. Baráttan heldur áfram. Réttlætið mun sigra að lokum. Þeim sem vilja styrkja baráttu VÁ og landeigenda er bent á https://www.va-felag.is/styrktu-okkur. Höfundur er stjórnarmaður í VÁ félagi um vernd fjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Guðmundsson Sjókvíaeldi Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun