Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2026 10:02 Markús Páll Ellertsson skoraði tvívegis gegn Stjörnunni og er í hópi markahæstu manna Bestu deildar karla. vísir/guðmundur Eftir fimm töp í röð vann ÍA stórsigur á Stjörnunni, 5-1, á Akranesi í Bestu deild karla í gær. Skagamenn eru nú aðeins einu stigi frá efri hlutanum en Stjörnumenn einungis tveimur stigum frá fallsæti.
Ekki var að sjá að slæmt gengi undanfarinna vikna sæti í Skagamönnum í upphafi leiks í gær. Þeir voru aðeins fjórar mínútur að ná forystunni en þá skoraði Haukur Andri Haraldsson af stuttu færi eftir skyndisókn og sendingu Viktors Jónssonar. Sex mínútum síðar jók Viktor forskotið í 2-0 eftir slæm mistök Árna Snæs Ólafssonar, markvarðar Stjörnunnar. Á 26. mínútu kom Jón Gísli Eyland Gíslason ÍA svo þremur mörkum yfir og staða heimamanna orðin afar vænleg. Andri Rúnar Bjarnason minnkaði muninn á 66. mínútu en aðeins fimm mínútum síðar skoraði Markús Páll Ellertsson fjórða mark ÍA eftir önnur mistök Árna Snæs. Nafni hans, Vilhjálmsson, hefði getað lagað stöðuna fyrir Stjörnuna en enn einn Árninn, Marinó Einarsson, varði vítaspyrnu hans á 84. mínútu. Tveimur mínútum síðar slapp Markús inn fyrir vörn Stjörnunnar og skoraði annað mark sitt og fimmta mark ÍA. Lokatölur 5-1, Skagamönnum í vil. Klippa: ÍA - Stjarnan 5-1 ÍA er nú í 7. sæti deildarinnar með átján stig, einu stigi á eftir Val og Keflavík sem eru í sætunum fyrir ofan. Stjarnan hefur tapað síðustu tveimur deildarleikjum sínum, 1-10 samanlagt. Garðbæingar eru í 9. sæti með fimmtán stig en gætu verið í því tíunda eftir umferðina, ef KA fær stig gegn Þór í kvöld. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla ÍA Stjarnan Tengdar fréttir Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, átti erfitt með að finna orðin til að lýsa frammistöðu sinna manna eftir 5-1 tap gegn ÍA uppi á Skaga í kvöld. 26. júlí 2026 22:10 Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. 26. júlí 2026 21:13 Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, átti erfitt með að finna orðin til að lýsa frammistöðu sinna manna eftir 5-1 tap gegn ÍA uppi á Skaga í kvöld. 26. júlí 2026 22:10
Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. 26. júlí 2026 21:13
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“