Erlent

Grunaður á­rásar­maður skotinn til bana í Ber­lín

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Christopher Street Day - Berlin
Getty

Maður, sem grunaður er um að hafa ekið sendiferðabíl inn í þvögu fólks á Gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi, var skotinn til bana í lögregluaðgerð í kvöld, að sögn lögreglunnar í Berlín. 

Einn lét lífið og 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talinn í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu.

BBC greinir frá og segir hinn grunaða hafa fundist í Spandau, úthverfi í vesturhluta Berlínarborgar, klukkan sex í kvöld að staðartíma.

 Hann hafi „ráðist að viðbragðsaðilum með stunguvopn, en þá beitti sérsveit lögreglunnar í Berlín skotvopnum,“ er haft eftir lögreglu. Hann hafi látist á vettvangi þrátt fyrir endurlífgunartilraunir viðbragðsaðila. 

Lögreglan birti mynd af manni sem grunaður er um verknaðinn, sem sagður er vera 21 árs gamall og heita Abdul B. Hann er kunnugur lögreglu og er talinn hafa verið stuðningsmaður, ef ekki meðlimur, Íslamska ríkisins, þar sem hann á að hafa verið í samskiptum við vígamenn samtakanna. Litið er á verknaðinn sem hryðjuverk. 


Tengdar fréttir

Fer enn huldu höfði

Abdoul Ballout, maðurinn sem er grunaður um að hafa ekið sendiferðabíl inn í þvögu fólks á Gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi fer enn huldu höfði.

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×