„Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. júlí 2026 22:46 Haraldi Frey Guðmundssyni fannst sínir menn sýna Íslandsmeisturunum of mikla virðingu. vísir/viktor Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur við byrjun sinna manna eftir 5-1 tap gegn Víkingi á Víkingsvelli í kvöld.
Keflvíkingar lentu 2-0 undir snemma leiks og Haraldi fannst hans menn hafa verið of langt frá Víkingum, sérstaklega varnarlega. „Mér fannst byrjunin hjá okkur ekki nógu góð, sérstaklega varnarlega. Við vorum langt frá þeim og einhvern veginn eins og við bærum of mikla virðingu fyrir þeim. Þeir komust í allt of margar góðar stöður, inn á völlinn og í skotfæri,“ sagði Haraldur eftir leik. Keflavík fékk hins vegar óskabyrjun á síðari hálfleik þegar Þorlákur Breki Þ. Baxter minnkaði muninn í 2-1 strax á 46. mínútu. Haraldur sagði liðið hafa rætt það í hálfleik að taka meiri áhættu og setja aukna pressu á Íslandsmeistarana. „Við töluðum um að fara út úr skelinni, taka sénsinn og setja meiri pressu á þá. Það virkaði strax í byrjun síðari hálfleiks, við komum stöðunni í 2-1 og þá var kominn hörkuleikur. Okkar besti kafli kom í kjölfarið.“ Keflvíkingar voru ágætlega inni í leiknum um tíma og fengu upphlaup á báða bóga áður en Óskar Borgþórsson kom Víkingum aftur í tveggja marka forystu á 66. mínútu. Haraldur taldi þriðja markið hafa ráðið miklu um framhaldið. „Við vorum í fínni stöðu þegar þeir gera þriðja markið. Þá breytist leikurinn svolítið. Í stöðunni 2-1 voru upphlaup á báða bóga og við vorum inni í leiknum, en mörk breyta leikjum.“ Víkingar bættu síðan við tveimur mörkum undir lokin og niðurstaðan varð stórt tap. Haraldur var þó ánægðari með frammistöðu sinna manna í síðari hálfleik en í þeim fyrri. „Fyrri hálfleikurinn var einhvern veginn þannig að við hreyfðum lappirnar ekki nógu hratt og vorum á eftir þeim. Þeir eru með öflugt lið og ná að halda mjög háu tempói,“ sagði Haraldur. „Seinni hálfleikurinn var í raun betur spilaður af okkar hálfu, þó að þeir hafi skorað fleiri mörk. Mér fannst við að minnsta kosti gefa okkur í leikinn, menn gáfust ekki upp og héldu áfram að reyna.“ Haraldur sagði mörkin undir lokin hafa verið óþarflega klaufaleg en viðurkenndi jafnframt gæði andstæðinganna. „Við fáum svolítið klaufaleg mörk á okkur undir lokin, en það er bara eins og það er. Við vorum að spila á móti Íslandsmeisturunum, þetta er hörkulið og þeir hittu líka á góðan dag,“ sagði Haraldur Freyr að lokum.
Besta deild karla Keflavík ÍF Víkingur Reykjavík Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport Fleiri fréttir Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Sjá meira