„Búin að slá út ansi öflug lið“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 24. júlí 2026 22:05 Jóhann Kristinn Gunnarsson er búinn að koma Þrótti í bikarúrslit. vísir/hulda margrét Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni. „
Líðanin er mjög góð. Mér fannst við gera mjög vel í kvöld og spila fínan leik. Mér fannst við verðskulda sigurinn,“ sagði Jóhann Kristinn í samtali við Vísi eftir leik. Spurður hver lykillinn hafi verið að sigrinum stóð ekki á svörum. „Sú vinna sem stelpurnar hafa lagt á sig síðustu daga. Sú ákvörðun sem þær taka síðustu daga eftir mjög erfiðar vikur í deildinni. Að berja sig saman, að standa meira saman, keppa leikinn og ætla að gera þetta saman sem lið. Það skóp sem gerðist hér í kvöld,“ sagði hann. Allir leikirnir voru erfiðir Þróttur hefur einu sinni áður spilað bikarúrslitaleik, árið 2021 þegar liðið tapaði 4-0 fyrir Breiðabliki. Í ár mætir Þróttur annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík og ætla Þróttarar sér alla leið í ár. „Það er eitt og sér stórkostlegt fyrir lið að komast á Laugardalsvöll í úrslitaleik bikarkeppninnar, því að það eru ofsalega sterk lið í þessari keppni. Auðvitað geturðu verið heppinn með einhverja leið að þessu en nú erum við búin að slá út ansi öflug lið finnst mér. Allir leikirnir voru erfiðir og stelpurnar hafa unnið sér þetta inn, eru komnar í sjálfan úrslitaleikinn. Ef þú ert kominn þangað þá ertu ekkert að fara bara til að vera með. Þú nýtur dagsins og allt það en þig langar að fá það sem er í boði,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson að lokum í samtali við Vísi. Á leið sinni í úrslitaleikinn hefur Þróttur lagt þrjú Bestu deildarlið að velli; ríkjandi bikarmeistara Breiðabliks í 16-liða úrslitum, Víking úr Reykjavík í átta liða úrslitum og nú ÍBV. Alla leikina, heimaleiki, vann Þróttur með eins marks mun.
Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík ÍBV Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“