„Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 20:57 Tareq Kamleh eða „Dr. Jihad“ í áróðursmyndbandi Íslamska ríkisins. Í þessu tiltekna myndbandi kallaði hann eftir því að fólk ferðaðist til Sýrlands og gengi til liðs við ISIS. Ástralskur maður sem gekk til liðs við Íslamska ríkið árið 2015 vill snúa aftur heim. Maðurinn, sem heitir Tareq Kamleh en gekk undir nafninu „Doctor Jihad“ þar sem hann var barnalæknir, hefur lengi verið talinn hafa fallið. Hann stakk þó nýverið upp kollinum í íröksku fangelsi og vill hann komast aftur til Ástralíu.
Á sínum tíma birtist Kamleh í áróðursmyndböndum ISIS. Fjölskylda hans taldi hann hafa fallið í umsátri sýrlenskra Kúrda um Raqqa í Sýrlandi á sínum tíma. Samkvæmt yfirvöldum í Írak stendur yfir rannsókn á því hvort að hann hafi brotið af sér með öðrum hætti en með því að veita ISIS læknisþjónustu. Angus Taylor, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ástralíu, segir að yfirvöld eigi að meina honum að snúa aftur, verði honum sleppt úr fangelsi í Írak. Áströlsk stjórnvöld segjast samkvæmt lögum ekki getað meinað áströlskum ríkisborgurum að ferðast til landsins. Ráðherra í ríkisstjórn landsins sagði þó í morgun að sín vegna mætti Kamleh „rotna í fangelsi“ í Baghdad. Samkvæmt ástralska ríkisútvarpinu (ABC News) er Kamleh einn þrettán ástralskra manna sem grunaðir eru um að hafa gengið til liðs við ISIS á sínum tíma og vilja nú snúa aftur til Ástralíu. Taylor kallaði eftir því í morgun að öllum þessum mönnum yrði meinað að snúa aftur, samkvæmt frétt Sky News í Ástralíu. Er það í kjölfar þess að nokkrar ástralskar konur, sem gengu á árum áður til liðs við Íslamska ríkið, og börn þeirra sneru aftur til Ástralíu á árinu. Sjá einnig: Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ríkisstjórn Ástralíu segir að samkvæmt lögum landsins megi ekki meina ríkisborgurum um vegabréf. Hægt sé að meina fólki tímabundið að snúa aftur en ekki varanlega. Kamleh hefur verið ákærður fyrir ýmis brot eins og að ganga til liðs við hryðjuverkasamtök og dreifa hryðjuverkaáróðri og yrði handtekinn við komuna til Ástralíu. Margir fóru til Sýrlands Þegar vígamenn Íslamska ríkisins fóru eins og stormsveipur um stóra hluta Sýrlands og Írak árið 2014 og stofnuðu í kjölfarið kalífadæmi þeirra þar, ferðaðist fjöldi fólks til Sýrlands með því markmiði að ganga til liðs við samtökin. Frá falli kalífadæmisins hafa sýrlenskir Kúrdar haldið þúsundum erlendra vígamanna ISIS og fjölskyldna þeirra í fangabúðum. Í heildina eru þeir taldir hafa haldið um 55 þúsund konum og börnum í nokkrum búðum í Sýrlandi þar sem aðstæður hafa talist verulega slæmar. Kúrdar höfðu lengi kvartað yfir því að sitja uppi með erlenda vígamenn og fjölskyldur þeirra. Ríkisstjórnir heimaríkja þeirra hafa ekki viljað taka við þeim og því hafa þessar konur og börnin þeirra setið föst í búðunum um árabil. Þá hafa lengi verið uppi áhyggjur af mikilli öfgavæðingu í búðunum þar sem gildi Íslamska ríkisins eru sögð hafa að miklu leyti haldið velli. Síðan ríkisstjórn Bashars al Assad féll hafa yfirvöld í Sýrlandi byrjað að reyna að losa sig við þetta fólk. Margir vígamenn hafa til að mynda verið sendir til Íraks og fjölskyldum erlendra vígamanna hefur verið sleppt. Í mörgum tilfellum þar sem erlendir vígamenn ISIS hafa snúið aftur til síns heima hefur reynst erfitt að sakfella þá fyrir dómstólum, þar sem lítið hefur verið um raunveruleg sönnunargögn um að þeir hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin. Í flestum ríkjum var ekki ólöglegt að ferðast til Sýrlands, ef yfirhöfuð var hægt að sanna að viðkomandi hefði farið til Sýrlands. Þetta er stór ástæða þess að sýrlenskir Kúrdar hafa setið uppi með þetta fólk í gegnum árin. Í Ástralíu var það að ferðast til Sýrlands þó gert ólöglegt á sínum tíma.
Ástralía Hryðjuverkastarfsemi Sýrland Írak Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira