Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. júlí 2026 21:50 Nikolaj Hansen er markahæsti leikmaður Víkings í Evrópukeppni. vísir/diego Nikolaj Hansen var glaður þegar hann haltraði í viðtal eftir leik Víkings og Beer Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Íslandsmeistaranna í 2-1 sigri þeirra. „
Já, þetta er bara gaman og ég er bara ótrúlega stoltur af liðinu hvernig við spiluðum hérna á heimavelli. Við erum búnir að spila svo vel og þetta var verðskuldaður sigur í dag,“ sagði Nikolaj í samtali við íþróttadeild eftir leikinn í Víkinni. Nikolaj og félagar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora, ekki frekar en gestunum frá Ísrael. „Við vorum smá ósáttir við að vera ekki 2-0 yfir í hálfleik en á sama tíma þurftum við bara að halda áfram. Við erum búnir að sýna hvað við erum góðir á heimavelli og stuðningurinn er búinn að vera svo góður. Það er fínt að taka 2-1,“ sagði Nikolaj. Eftir jöfnunarmark Beer Sheva átti Víkingur á brattann að sækja en náði aftur vopnum sínum eftir að mark var dæmt af ísraelsku meisturunum seint í leiknum. „Þetta gerðist líka úti á móti Györ. Við komumst 1-0 yfir en þeir skora strax eftir það. Þetta er oft svona, menn komast yfir en slaka svo aðeins á. Við verðum kannski aðeins að vinna í því og halda áfram að berjast eins og við vorum búnir að gera,“ sagði Nikolaj. En hvernig sneru Víkingar taflinu aftur sér í vil? „Bara halda áfram. Við gerðum bara það sem við erum góðir í og sýndum okkar leik. Við spiluðum vel, sköpuðum mikið af færum og á sama tíma var þetta svona kamikaze-fótbolti og við hefðum kannski átt að refsa þeim meira,“ svaraði Nikolaj. Hann var með íspoka á ökklanum eftir leikinn og stakk við. „Já, þetta gerðist úti á móti Györ. Þetta er búið að vera bólgið og allur fóturinn fjólublár en ég verð bara að berjast og spila,“ sagði Nikolaj sem er vongóður fyrir seinni leikinn gegn Beer Sheva í næstu viku. „Já já, núna erum við komnir 2-1 yfir í einvíginu en þetta er bara fyrri hálfleikur. Núna förum við aftur út og við vitum hvernig það verður. Við fórum til Ungverjalands í síðasta leik og þetta verður erfitt. En á sama tíma er maður bara bjartsýnn fyrir næsta leik,“ sagði Nikolaj að lokum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira