Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. júlí 2026 21:15 Rodney Coronado, leiðangursstjóri Leiðangurs 86 á vegum Paul Watson Foundation. Nafn leiðangurs er bein vísun í herferð Sea Shepard gegn hvalveiðum Íslendinga árið 1986. Samsett Skipið Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, stefnir í átt að Íslandi á ný. Skipið er statt „djúpt“ suðaustur af landinu en Landhelgisgæslan áætlar komu þess í íslenska efnahagslögsögu klukkan ellefu í kvöld.
Magnús Pálmar Jónsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, staðfesti í samtali við blaðamann Vísis að Bandero stefni nú í átt að Íslandi en sigli frá Írlandi. Skipið sé nú staðsett „djúpt suðaustur af landinu“ en ekki sé hægt að áætla nákvæmlega hvert það stefni. Í morgun hafi Gæslan áætlað að Bandero yrði komið innan íslenskrar efnahagslögsögu klukkan ellefu í kvöld. Landhelgisgæslan hafi ekki verið í samskiptum við neinn um borð en fylgist grannt með ferðum og stefnu skipsins í gegnum fjareftirlitsbúnað. Frekari viðbúnaður Gæslunnar fari eftir því hvað skipið komi nálægt landinu en skipið sé „í raun alveg frjálst að sigla og síðast gerði hann ekkert annað en að sigla“ í efnahagslögsögunni. Sennilega muni Gæslan þó sinna eftirliti með skipinu með þyrlum eða flugvélum á næstu dögum Samtök Paul Watsons hefur verið á höttunum eftir hvalveiðiskipum Hvals hf. en sigldi af Íslandsmiðum fyrr í júlímánuði vegna heilsufarslegs neyðartilfellis. Hópur fólks var um borð í skipinu Bandero til að fylgja eftir Aðgerð 86 sem Paul Watson-samtökin skipulögðu. Markmið þeirra er að stöðva hvalveiðar á Íslandi með einum eða öðrum hætti og hafa samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt. Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgdi Bandero um tíma með sérsveitarmenn um borð til að tryggja öryggi sjófarenda. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hvalir Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Tengdar fréttir Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Paul Watson býður nú peningaverðlaun, tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvern þann sem vísað getur á staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals ehf. 8. júlí 2026 08:06 Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú hraðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur leikur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum. 3. júlí 2026 13:07 Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Systir Haraldar er látin Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Sjá meira
Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Paul Watson býður nú peningaverðlaun, tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvern þann sem vísað getur á staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals ehf. 8. júlí 2026 08:06
Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú hraðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur leikur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum. 3. júlí 2026 13:07