Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júlí 2026 14:50 Ann Widdecombe var 78 ára gömul. AP Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform).
Komið var að Widdecombe látinni að heimili hennar í Suðvestur-Englandi þann 9. júlí síðastliðinn. Áhyggjur vöknuðu þegar Widdecombe mætti ekki til viðtals þann 8. júlí. Það var svo daginn eftir sem garðyrkjumaður kom að henni látinni á eldhúsgólfi heimilisins. Hún var 78 ára gömul. Lögregla lýsti því fljótlega yfir að líkur væru á að hún hefði verið myrt. Ástæður morðsins eru enn ókunnar. Málið hefur verið rannsakað sem hryðjuverk. Tuttugu og átta ára gamall maður, Joshua Kerry, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir morðið. Í umfjöllun Reuters er tekið fram að Kerry sé hvítur á hörund. Í máli saksóknarans í málinu hefur komið fram að verknaðurinn hafi náðst á öryggismyndavél á heimili hennar. Ákærði kom að húsinu meðan hin látna snæddi hádegisverð og spurði hana hvort hún bæri á sér bankakort eða skilríki. Kerry var íklæddur svörtum hönskum og bar hamar í hendi sér, sem hann huldi fyrir Widdecombe. Kerry sló hana því næst tuttugu og einu sinni í höfuðið með hamrinum, hrinti henni í gólfið, tók veski hennar og var á bak og brott aðeins tveimur mínútum eftir að hann kom. Áætlað er að réttarhöld í málinu muni hefjast 8. júní á næsta ári. Widdecombe áberandi í bresku þjóðlífi síðustu áratugi Widdecombe var á stjórnmálaferli sínum þekkt fyrir íhaldssöm viðhorf. Hún hafði á síðustu árum sérstaklega beitt sér í innflytjendamálum. Widdecombe var áfram áberandi í bresku samfélagi eftir að þingferli hennar lauk og var hún meðal annars keppandi í raunveruleikaþættinum Strictly Come Dancing og Celebrity Big Brother. Umræður hafnar um öryggi stjórnmálamanna Morð Widdecombe hefur endurvakið umræður í Bretlandi um öryggi stjórnmála en tveir þingmenn hafa verið myrtir þar í landi á síðustu tíu árum, Jo Cox, þingmaður Verkamannaflokksins, árið 2016 í aðdraganda Brexit-kosningarinnar, og sir David Amess, þingmaður Íhaldsflokksins, árið 2021 af stuðningsmanni Íslamska ríkisins (ISIS). Þá vekur hamarsárásin einnig hugrenningartengsl við árás sem gerð var á heimili Nancy Pelosi í október 2022. Nancy Pelosi hefur staðið framarlega í Demókrataflokknum síðustu áratugi og hefur meðal annars tvisvar gegn embætti þingforseta fulltrúadeildarinnar. Pelosi var ekki heima þegar árásarmanninn bar að garði en hann réðst á eiginmann hennar Paul Pelosi, þá 82 ára gamlan. Paul lifð árásina af og var árásarmaðurinn síðar dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar.
Bretland Erlend sakamál Morðið á Ann Widdecombe England Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira