„Ég þakkaði bara Guði“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 19. júlí 2026 16:25 Anton Ingi Rúnarsson þakkaði Guði þegar jöfnunarmark Víkings var dæmt af. vísir / DIEGO „Alltaf gaman að vinna, en extra gaman að koma til baka aftur,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir 1-2 seiglusigur á Víkingum í botnbaráttuslag í Víkinni í dag. „
Við komum boltanum frekar oft fyrir aftan varnarlínuna þeirra, sem við ætluðum okkur að gera. Spilamennskan hefur oft verið betri spillega séð en einföldu hlutirnir virkuðu vel, unnum fyrsta og annan bolta og skoruðum tvö mörk. Það var helvíti gott,“ sagði Anton Ingi aðspurður út í hvað lið hans gerði vel í dag. Alda Ólafsdóttir kom Fram í 1-2 á 78. mínútu og eftir það lág Víkingsliðið á liði Fram. aðspurður hvort ekki hafi farið um menn á bekknum, þá svaraði Anton Ingi því játandi. „Já, það fór um okkur. Þær lágu svolítið á okkur og við bökkuðum svolítið mikið. Tókum svolítið Englands-fasann á þetta nokkuð snemma þannig að það var orðið smá stress. En við náðum að halda hreinu og Ashley gerði frábærlega í föstu leikatriðunum, það hjálpaði okkur helling.“ Jöfnunarmark Víkings dæmt af Á lokarandartökunum skoruðu Víkingar mark sem dæmt var af vegna rangstöðu sem virtist vera afar tæpt. Anton Ingi segist þakka Guði fyrir að flaggið hafi farið á loft þarna. „Ég þakkaði bara Guði fyrir þegar ég sá flaggið fara á loft. Ég var svekktur þarna, en það tók tvær sekúndur að sjá flaggið og það var helvíti flott.“ Fram hefur nú unnið þrjá leiki í röð í deildinni eftir að hafa aðeins verið með fjögur stig eftir níu leiki. Næsti leikur liðsins er undanúrslitaleikur í Mjólkurbikarnum sem er einn stærsti leikur í sögu kvennaliðs Fram í mörg ár. Anton Ingi segist það vera gaman að vera í Fram þessi dægrin. „Það er bara stemning. Það er mjög gaman og það er bara eins og Þóra varamarkvörður talaði um, það er bara að fara á völlinn og njóta þess að spila og hafa gaman og það er bara það sem við erum búin að vera gera og ætlum að halda því gangandi.“
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Fram Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“