Hótar tollum vegna skógareldanna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. júlí 2026 09:09 Donald Trump kennir kanadískum stjórnvöldum um heilsuspillandi loftgæði í norðaustanverðum Bandaríkjunum. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við.
Samkvæmt upplýsingamiðstöð kanadískra stjórnvalda um skógar- og sinuelda loga tæpelga þúsund skógareldar um landið allt, frá ósum Mackenzie-fljótsins við heimsskautið og austur til Nýja-Skotlands. Þar af loga rúmlega tvö hundruð í Ontario-fylki og norðvestanvindar blása reyknum yfir landamærin til Bandaríkjanna. Úrslitaleikurinn undir Loftgæði í borgum í norðan- og austanverðum Bandaríkjunum eru þau verstu í heimi um þessar mundir. Appelsínugulur mökkur liggur yfir New York, Chicago, Detroit og Minneapolis og blikur eru á lofti varðandi úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem á að fara fram í New York-borg á sunnudagskvöldið. „Við gerum Kanada ábyrgt fyrir því að halda ekki skógum sínum og sinu við almennilega, og Bandaríkin verða fyrir óþarfa innrás af skítugu, menguðu og heilsuspillandi lofti. Gæði þess eru hættuleg og algjörlega óásættanleg!“ segir Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðlum. „Ég mun hringja í forsætisráðherrann í dag til að komast að því hvað þeir ætla að gera í þessu. Kostnaðurinn er ómetanlegur! Kanada hefur neitað að stunda grundvallarskógrækt og fjarlægingu rusls, fullmeðvitað um að slík vanræksla myndi leiða til nákvæmlega þessarar niðurstöðu. Þetta er stórkostlegt gáleysir og er að verða árlegur viðburður sem kostar Bandaríkin milljarða dollara, en kostnaðinum af þessari mengun verður nauðsynlega að bæta við tollana sem Kanada greiðir nú þegar,“ segir hann svo. Biður um aðstoð í stað kvartana Doug Ford forsætisráðherra Ontario-fylkis gagnrýndi málflutning Bandaríkjamanna í gær og hvatti þá til að aðstoða við slökkvistarfið. „Í stað þess að kvarta ættuð þið kannski að senda stuðning, senda hjálp, því við höfum gert nákvæmlega það sama fyrir bandaríska vini okkar,“ sagði hann.
Bandaríkin Kanada Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira