Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar 18. júlí 2026 08:01 Í vikunni birti mennta- og barnamálaráðuneytið áform um frumvarp til laga um aldurstakmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum í samráðsgátt stjórnvalda. Áformin eru lögð fram í nafni þess að auka öryggi barna og ungmenna á netinu, sem er markmið sem við getum líklega öll verið sammála um. Ég trúi því staðfastlega að ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins hafi hjartað á réttum stað og vilji vel, en einmitt þess vegna skjóta áformin svo skökku við. Lagasetning sem þessi er ekki til þess fallin að ná markmiðum sínum heldur kemur þvert á móti til með að hafa gríðarlega mikil skaðleg áhrif. Aldurstakmörk á samfélagsmiðlum hafa verið í deiglunni víða um heim á undanförnum mánuðum. Ástralía tók af skarið um síðustu áramót og bannaði ungmennum yngri en 16 ára að nota samfélagsmiðla. Sams konar lög hafa í kjölfarið verið sett eða bíða setningar víða í Bandaríkjunum og Evrópu. Þessi alþjóðlega þróun hefur átt sér stað á sama tíma og samfélagsmiðlafyrirtækið Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, hefur styrkt þrýstihópa um meira en tvo milljarða bandaríkjadala til að beita sér fyrir innbyggðri aldursstaðfestingu í stýrikerfum. Bent hefur verið á að með því skapist varanlegt og einstakt auðkenni fyrir hvert einasta tæki, sem auðveldar stórfyrirtækjum eins og Meta þannig að fylgjast enn betur með nethegðun hvers einasta notanda. Til að framfylgja aldurstakmörkunum gagnvart ungmennum þurfa samfélagsmiðlafyrirtæki að staðfesta aldur allra notenda. Bann við notkun ungmenna á samfélagsmiðlum leiðir því til þess að fullorðnir notendur verða neyddir til að afhenda fyrirtækjunum afrit af löggildum skilríkjum, lífkenni á borð við skann af andliti og aðrar viðkvæmar upplýsingar. Samfélagsmiðlafyrirtækin, sem hafa nú þegar í áraraðir gerst sek um óhóflega og ólöglega upplýsingasöfnun gagnvart notendum sínum, fengju þannig enn verðmætari upplýsingar upp í hendurnar í boði íslenska ríkisins. Þá er ekki minnst á þá gríðarlegu öryggishættu sem fylgir söfnun viðkvæmra upplýsinga, en nú þegar hafa nokkur atvik komist í fréttir þar sem gögnum sem samfélagsmiðlar söfnuðu til aldursstaðfestingar var lekið. Einn slíkur leki varð frá samskiptamiðlinum Discord, sem hefur yfir 200 milljón virka notendur. Samfélagsmiðlafyrirtæki hafa sýnt að þeim er ekki treystandi fyrir persónuupplýsingum og það síðasta sem við ættum að gera er að rétta þeim þær á silfurfati. Auk ofantalinna hætta er aldursstaðfestingartækni, líkt og öll tækni, ófullkomin. Sá ófullkomleiki bitnar verst á þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu. Aldursgreiningarhugbúnaður er til að mynda gjarn á að ranggreina aldur fólks sem er ekki hvítt, fatlaðs fólks og trans fólks. Ofan á það bætist að jaðarsett fólk er ólíklegra til að hafa efni á löggildum skilríkjum, auk þess sem margt trans fólk á ekki og getur jafnvel ekki orðið sér út um skilríki sem sýna rétt nafn og kyn. Það er einstaklega kaldhæðnislegt í ljósi þess að samfélagsmiðlar eru gjarnan griðastaðir margs jaðarsetts fólks sem á ekki bakland í raunheimum, svo sem hinsegin ungmenna sem fá ekki stuðning heima fyrir. Fyrir sumu fólki er eina samfélagið sem það hefur á samfélagsmiðlum og oft eru þeir eini staðurinn sem fólk hefur til að nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Með því að útiloka viðkvæmustu hópana frá meginstraumsmiðlum er hætt við að slík samfélög færist yfir í myrkari kima internetsins, á miðla sem fylgja ekki lögum og taka síður ábyrgð á því efni sem þeir hýsa. Þannig getur lagasetning sem þessi leitt til þess að ungmennin sem henni er ætlað að vernda verði frekar berskjölduð fyrir skaðlegu efni. Þar til nýlega voru uppi áform innan ríkisstjórnar Bretlands um að banna sýndareinkanet (VPN) vegna þess að talið var að bresk ungmenni myndu nota þau í stórum stíl til að beina netumferð sinni um önnur lönd og komast þannig fram hjá komandi aldurstakmörkunum á samfélagsmiðlum þar í landi. Raunin er þó sú að fyrir utan notkun fyrirtækja og stofnana eru sýndareinkanet einna mest notuð til að komast undan ritskoðun af hálfu hins opinbera. Að banna sýndareinkanet er ekki einungis tæknilega illmöguleg heldur gríðarlega hættuleg tillaga sem sendir þau skilaboð að borgararéttindi séu til málamynda og fjöldaeftirlit sé það sem koma skal. Við lifum á viðsjárverðum tímum. Tjáningarfrelsi er fótum troðið víða um heim og þrengt hefur verið að réttindum jaðarhópa, sums staðar með þeim afleiðingum að fólk sem hefur lýst yfir stuðningi við réttindabaráttu þeirra á samfélagsmiðlum er stimplað hryðjuverkamenn. Samfélagsmiðlar hafa gríðarlegt vald til að móta samfélagsumræðuna, bæði á jákvæðan hátt með því að lyfta upp rödd almennings og á neikvæðan hátt með því að stýra því hvaða efni fólk sér, í þeim tilgangi að móta skoðanir þess. Sú alþjóðlega herferð sem hefur valdið því að fleiri og fleiri lönd hafa leitt aldurstakmörk á samfélagsmiðla í lög dregur úr tjáningarfrelsi almennings og vernd uppljóstrara. Hún þrengir að öryggi fólks á netinu og raunar að stoðum lýðræðisins, þrátt fyrir yfirlýst markmið um hið gagnstæða. Látum ekki blekkjast. Leyfum samfélagsmiðlafyrirtækjunum ekki að komast upp með áframhaldandi ábyrgðarleysi gagnvart skaðlegu efni sem þau hýsa, ávanabindandi hönnun miðlanna og ólögmætri upplýsingasöfnun um notendur. Ábyrgðin er þeirra. Krefjumst þess að þau beri hana, fólki á öllum aldri til hagsbóta, frekar en að velta henni yfir á notendur. Höfundur er tölvunarfræðingur og mannréttindaaktívisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Símanotkun barna Samfélagsmiðlar Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun