Er nýi Haaland íslenskur? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 08:00 Bjarki Hrafn Garðarsson þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður Borussia Dortmund. Borussia Dortmund Bjarki Hrafn Garðarsson er án efa einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslands enda nýbúinn að gera samning við þýska stórliðið Borussia Dortmund.
Bjarki Hrafn hefur vakið athygli með unglingaliðum Stjörnunnar sem og með íslensku unglingalandsliðunum þar sem hann hefur skorað 8 mörk í 17 leikjum, þar af sex mörk í níu leikjum með sínu landsliði, það er sextán ára landsliðinu. Hann hreif útsendara þýska stórliðsins það mikið að hann er kominn á samning í Þýskalandi þrátt fyrir að vera aðeins sextán ára gamall. Bjarki Hrafn byrjar í unglingaliðum félagsins og svo er það undir honum komið að vinna sig upp metorðastigann. Bjarki kom við sögu í þremur leikjum með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar en skoraði ekki. Þeir verða ekki fleiri í bili þar sem hann er fluttur út. Stjarnan seldi hann til þýska liðsins en Garðbæingar munu örugglega fylgjast vel með afrekum hans erlendis. View this post on Instagram A post shared by Stjarnan FC (@stjarnanfc) „Bjarki hefur vaxið og dafnað innan raða Stjörnunnar og verið frábær fulltrúi félagsins, bæði innan vallar sem utan. Dugnaður, metnaður og jákvætt hugarfar hafa skilað honum þessum verðskuldaða áfanga,“ segir í kveðju til Bjarka á miðlum Stjörnunnar og þar bæta þeir við: „Við hjá Stjörnunni erum afar stolt af Bjarka og óskum honum innilega til hamingju með þetta stóra skref. Við erum sannfærð um að hann muni halda áfram að þróast sem leikmaður og einstaklingur hjá einu stærsta félagi Evrópu.“ Stuðningsmenn Dortmund eru líka mjög spenntir fyrir íslenska framherjanum og sumir halda því fram að þar sé félagið búið að finna næsta Erling Braut Haaland. Norski framherjinn spilaði einmitt með þýska liðinu áður en hann fór til Manchester City. Það er náttúrulega svakalega ósanngjarn samanburður fyrir ungan og óharðnaðan strák en segir samt ýmislegt um hæfileika hans á þessum aldri. Margir sjá fyrir sér bjarta framtíð haldi Bjarki sér á réttri braut. Samanburðurinn snýr líka að líkamsgerð og styrkleika stráksins. Hann er örvfættur og 194 sentimetrar á hæð og spilar eins og klassísk nía. Nánast afrit af umræddum Haaland. Hann er hraður, grimmur og marksækinn og því er auðvelt að bera hann saman við norsku stórstjörnuna. Það er svo undir honum komið að nýta þessa hæfileika og taka réttu skrefin á ferlinum. Hér fyrir neðan má sjá einn af þessum samanburðum Bjarka Hrafns og Haaland. View this post on Instagram A post shared by FutureBallersDE (@futureballersde)
Þýski boltinn Stjarnan Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira