Sjálfbært laxeldi á Íslandi Kristján Ingimarsson skrifar 17. júlí 2026 12:31 Sjálfbærni felur í sér að uppfylla þarfir samtímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta sínum þörfum. Íslenskt laxeldi smellpassar inn í þetta þar sem markmiðið er að framleiða holl og næringarrík matvæli með sem minnstum áhrifum á umhverfið og um leið skapa verðmæti fyrir samfélagið. Íslenskt laxeldi uppfyllir mörg af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um matvælaöryggi, heilsu, atvinnusköpun, ábyrga nýtingu auðlinda, loftslagsmál og verndun lífs í hafi. Kaldvík fékk nýlega svokallaða ASC-vottun (Aquaculture Stewardship Council) sem er alþjóðleg sjálfbærnivottun fyrir fiskeldi. Vottunin staðfestir að eldið uppfylli ítarlegar kröfur um umhverfisvernd, samfélagslega ábyrgð, rekjanleika og góða stjórnarhætti, sem eru staðfestar með óháðri úttekt, og vinni markvisst að því að draga úr áhrifum sínum. Það þarf meiri mat Þörf fyrir sjálfbæra próteingjafa fer ört vaxandi samhliða fólksfjölgun í heiminum. Lax er einn hagkvæmasti próteingjafi sem völ er á þegar litið er til nýtingar náttúruauðlinda. Þar sem lax er með kalt blóð þarf hann mun minni orku til vaxtar en spendýr og fuglar. Til að framleiða eitt kíló af laxi þarf aðeins um 1,2–1,3 kg af þurrfóðri, en til samanburðar þarf nautgriparækt um 25 kg af fóðri fyrir hvert kíló af nautakjöti. Auk þess hefur laxeldi almennt lægra kolefnisspor, minni landnotkun og minni ferskvatnsþörf en hefðbundin kjötframleiðsla. Hvaðan kemur fóðrið? Þróun fiskafóðurs er mikilvægur þáttur í sjálfbærni laxeldis en á síðustu áratugum hefur samsetning laxafóðurs breyst verulega. Fiskimjöl og lýsi voru áður fyrr meginuppistaða þess en nú byggist stór hluti fóðurs á plöntuprótínum, jurtaolíum og öðrum sjálfbærum hráefnum. Fiskimjöl og lýsi eru þó enn nauðsynleg í ákveðnu magni þar sem þau innihalda nauðsynlegar amínósýrur og omega-3 fitusýrur sem laxinn þarf til eðlilegs vaxtar og gera laxinn jafnframt að verðmætri fæðu fyrir mannfólkið. Sífellt stærri hluti þessara sjávarhráefna kemur frá afskurði og aukaafurðum fiskvinnslu í stað þess að byggjast á sérstökum veiðum til fóðurframleiðslu. Þannig er hráefnið nýtt betur og matarsóun minnkuð. Því hefur verið haldið fram að það þurfi jafnvel 3-4 kg af villtum fiski á hvert kg af laxi og fyrir um 40 árum gæti þetta hlutfall mögulega hafa verið rétt. Síðan hefur margt breyst í framleiðslu á fóðri og árið 2024 var staðan orðin sú að víðast hvar þar sem laxeldi er stundað þarf 0,5–0,6 kg af villtum fiski til að búa til eitt kíló af eldislaxi. Villtur fiskur er því rétt um helmingur þeirrar fæðu sem lax þarf til að þyngjast um eitt kíló. Sjálfbærni, samfélag og efnahagur Á Íslandi starfa fyrirtæki í laxeldi samkvæmt ströngum reglum um umhverfisvernd og matvælaöryggi. Sýklalyf eru ekki notuð og framleiðslan lýtur ítarlegu eftirliti. Fyrirtækin vinna samkvæmt alþjóðlegum vottunarstöðlum sem gera kröfur um velferð, umhverfisáhrif, rekjanleika hráefna, samfélagslega ábyrgð og góð samskipti við nærsamfélagið. Jafnframt er lögð áhersla á að lágmarka umhverfisáhrif með skilvirkri fóðurnýtingu, ábyrgri notkun á vatni og stöðugu eftirliti með áhrifum á vistkerfi sjávar. Sjálfbærni laxeldis snýst ekki aðeins um umhverfið heldur einnig um samfélag og efnahag. Greinin skapar fjölbreytt og vel launuð störf víða um land og starfa hátt í tvö þúsund manns, beint og óbeint, í greininni. Með tilkomu laxeldis hafa búsetuskilyrði á landsbyggðinni gjörbreyst til hins betra. Greinin styrkir byggðir og hvetur til nýsköpunar í fjölmörgum atvinnugreinum og stuðlar um leið að betri nýtingu hráefna og aukaafurða, aukinni verðmætasköpun og minni sóun. Atvinna, verðmæti og byggðafesta Þrátt fyrir að laxeldi standi frammi fyrir áskorunum hefur greinin þróast hratt í átt að aukinni sjálfbærni, samanber þær vottanir sem Kaldvík og fleiri fyrirtæki hafa fengið. Með áframhaldandi rannsóknum, öflugu eftirliti og ábyrgri stjórnun getur íslenskt laxeldi orðið enn mikilvægari þáttur í framleiðslu sjálfbærra matvæla til að mæta fólksfjölgun og um leið stuðlað að verðmætasköpun, byggðafestu og atvinnuuppbyggingu á Íslandi. Stjórnvöld hafa nú gullið tækifæri til að festa greinina í sessi, efla í leiðinni íslenskt atvinnu- og efnahagslíf og efla byggðir landsins með því að búa til sanngjarnt kerfi sem eykur samkeppnishæfni íslensks laxeldis á alþjóðavísu. Við vonum að þeim sem stjórna beri gæfa til að efla íslenskt laxeldi enn frekar og byggja ofan á þá góðu vinnu sem unnin hefur verið, landi og þjóð til heilla. Höfundur er fiskeldisfræðingur og öryggis- og fræðslustjóri hjá Kaldvík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Sjókvíaeldi Kaldvík Umhverfismál Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar