Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 08:31 Sigurður Ragnar er þjálfari NSÍ. Vítaspyrna var dæmd þegar varnarmaður tók boltann upp með höndum, handviss um að búið væri að dæma markspyrnu, í leik í Sambandsdeild Evrópu í gær.
Það var færeyska liðið NSÍ Runavík, undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, sem hagnaðist á þessu lygilega atviki því úr vítinu kom sigurmark liðsins gegn Hamrun Spartans, í uppbótartíma á Möltu. Atburðarásina má sjá hér að neðan. Absolute chaos in the UEFA Conference League qualifier between Malta’s Hamrun and NSI of the Faroe Islands.Hamrun were convinced the ball had gone out for a goal kick, so they picked it up.Referee awarded a 91st-minute penalty.Hamrun lost 2-1 and 3-2 on agg.Incredible. pic.twitter.com/xSMFPOL9Zm— Sacha Pisani (@Sachk0) July 17, 2026 Leikmenn Hamrun Spartans töldu, kannski skiljanlega, að boltinn hefði farið aftur fyrir endamörk áður en Tobias Hestad, leikmaður NSÍ, náði að sparka honum fyrir markið. Þar var enginn samherja hans og því ekki hætta á ferð en úr því að leikmenn Hamrun töldu að þeir ættu markspyrnu þá tók fyrirliði liðsins, Emerson Marcelina, boltann upp með höndum og stillti honum upp fyrir markspyrnu sem hann tók svo. Þá dæmdi Jeremy Muller, dómari frá Lúxemborg, hins vegar umsvifalaust víti. Peter Knudsen skoraði úr vítinu og tryggði NSÍ 2-1 útisigur gegn Maltverjunum, og samtals 3-2 sigur í einvíginu. Þegar lokaflautið gall hópuðust leikmenn Hamrun að dómaranum og stuðningsmenn liðsins létu hann einnig heyra það, áður en lögregla fylgdi dómarateyminu af vellinum. NSÍ er nú komið áfram í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og mætir þar Koper frá Slóveníu í næstu viku.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Sjá meira