Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. júlí 2026 17:03 Craig Gordon lætur gott heita eftir 25 ár í fótbolta. Hannah Peters - FIFA/FIFA via Getty Images Craig Gordon, markvörður Hearts í Skotlandi og elsti leikmaður HM í sumar, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna.
Gordon er orðinn 43 ára gamall og hefur átt magnaðan feril sem hófst hjá Hearts árið 2001 en hann spilaði einnig fyrir Celtic í Skotlandi og Sunderland á Englandi áður en hringnum var lokað. Hjá Hearts var hann liðsfélagi Tómasar Bent Magnússonar. Þeir sátu hlið við hlið í klefanum og mynduðu með sér góðan vinskap. Langur ferill Gordon var líka meiðslum hrjáður og hann þurfti oftar en einu sinni að ákveða hvort hann myndi hætta eða halda áfram í fótbolta. Alltaf barðist hann samt til baka og í vor var hann hársbreidd frá því að verða meistari með uppeldisfélaginu Hearts, en horfði á eftir titlinum í lokaumferð deildarinnar. Gordon var elsti leikmaðurinn á HM í sumar en spilaði ekki leik því Angus Gunn stóð milli stanganna í öllum leikjum Skotlands. „Ólíklegt? Kannski. Ómögulegt? Alls ekki. Með vinnusemi og fórnum, í gegnum áföll og skref fyrir skref verða draumar að veruleika. Ég fór frá því að styðja Hearts yfir í að spila fyrir Hearts. Það er ekkert betra en að ganga út á Tynecastle völlinn, heyra áhorfendur öskra og fagna sigri. Ég vildi aldrei að þetta myndi enda, en allt tekur enda. Ég hef lifað drauma mína og fyrir það er ég svo þakklátur. Nú eru hanskarnir loksins komnir á hilluna og ég kveð ferilinn. Þið, stuðningsmenn, hafið gefið mér allt og það hafa verið forréttindi að vera fulltrúi ykkar. Ég vona að þið hafið notið þess jafn mikið og ég. Af öllu hjarta, takk fyrir,“ sagði Gordon í myndbandi sem hann birti á Instagram. View this post on Instagram
Skoski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira