Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. júlí 2026 12:36 Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ. vísir/hulda Margrét Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar.
Samkvæmt fréttastofu Breska ríkisútvarpsins verður yfirstandandi heimsmeistaramót karla í fótbolta stærsti veðmálaviðburður sögunnar. Reiknað er með að í heildina verði 50 milljörðum bandaríkjadala varið í veðmál áður en mótinu lýkur en það gerir um sex billjónir íslenskra króna. Um 15 milljarða bandaríkjadala aukningu er að ræða frá síðasta móti en sú aukning skýrist að miklu leyti af því að fjöldi liða á mótinu er nú 48 en ekki 32 og því fleiri leikir eðli málsins samkvæmt. Heimildin greindi fyrst frá. Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hefur áhyggjur af því að enn fleiri ánetjist veðmálum út frá mótinu og leiti í kjölfarið til samtakanna vegna fíknivanda. Heimsmeistaramótið geti virkað eins og gáttarefni (e. gateway drug) fyrir suma. „Það eru allir að tala um þetta. Það er búið að normalísera þetta svo rosalega að veðja. Það er alveg mjög líklegt að þetta muni skila sér í aukningu. Mér finnst þetta bara mjög varhugavert. Af því að þetta veldur fíkn, það er ekki þar með sagt að það séu allir sem lenda í vanda en það er stór hópur sem lendir í vanda.“ Veðmálastarfsemi hefur verið auglýst víða í kringum heimsmeistaramótið á samfélagsmiðlum, á vefsíðum og í hlaðvörpum þrátt fyrir blátt bann gegn slíkum auglýsingum samkvæmt íslenskum lögum. „Þetta er alls staðar á samfélagsmiðlunum og verið að auglýsa. Maður tekur alveg eftir aukningu og aðalbreytingin finnst mér vera sú að þetta er orðið bara eins og allir séu að veðja. Þetta er skrýtin þróun. Sérstaklega ungt fólk, þetta er orðið svona þú veist þetta eru bara heilu vinahóparnir sem taka sig saman. Bara í umræðunni snýst þetta allt um hvað þú ert búinn að veðja, hvað á að veðja í kvöld?“ Forðast skuli að leyfa skömminni að bera sig ofurliði og hvetur hún þá sem eiga við vanda að stríða að leita sér hjálpar. „Þetta er skemmtun en skemmtun fylgir líka ákveðnar neikvæðar afleiðingar. Það er aukning á áfengisneyslu og það sem tengist líka spilamennsku er að þegar fram líað stundir og þú ert kominn í vanda, þá getur neyslan á áfengi aukist. Af því að vanmátturinn er svo mikill, skömmin er svo mikil.“
Fjárhættuspil Fíkn Heilbrigðismál HM 2026 í fótbolta Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira