Viðskipti innlent

Val­geir Örn af skjánum til Landsnets

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Valgeir hefur verið á skjánum landsmanna fyrir hönd fréttastofu Rúv.
Valgeir hefur verið á skjánum landsmanna fyrir hönd fréttastofu Rúv. Aðsend

Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður hjá Landsneti og segir því skilið við fréttastofu Rúv þar sem hann hefur starfað frá árinu 2012.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að hann muni leiða samskipti fyrirtækisins við almenning, hagaðila og fjölmiðla, auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks.

Síðustu ár hefur Valgeir gegnt stöðu varafréttastjóra ásamt því að vera sjónvarpsfréttaþulur og stýra umræðuþættinum Silfrinu. Þá hefur hann lagt áherslu á að byggja upp stafræna fréttamiðla Rúv. Valgeir er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

„Landsnet leggur mikla áherslu á opin og góð samskipti. Við viljum eiga aðgengilegt og upplýsandi samtal við landsmenn um okkar mikilvægu starfsemi og um þau verðmæti og lífsgæði sem öflugt flutningskerfi raforku á þátt í að skapa. Ráðning Valgeirs er hluti af breytingum hjá Landsneti til að vera enn betur í stakk búin að sinna okkar hlutverki. Við bjóðum hann velkominn til starfa,“ er haft eftir Ríkharði Ríkharðssyni, aðstoðarforstjóra Landsnets, í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×