Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Andri Broddason skrifar 13. júlí 2026 11:03 Sérfræðingar Bestu markanna völdu úrvalslið deildarinnar hingað til. Skjáskot/Vísir Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist á föstudaginn og ákváðu sérfræðingar Bestu markanna að velja lið deildarinnar hingað til. Sérfræðingarnir kusu og munaði oft litlu milli leikmanna. Besta deild kvenna er hálfnuð og í Bestu mörkunum völdu sérfræðingarnir lið deildarinnar hingað til. Jóhann Fjalar Skaptason fékk Helenu Ólafsdóttur og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur með sér til að fara yfir liðið. Einnig var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar og besti leikmaður deildarinnar. Markmaður: Bridgette Skipa (Stjarnan) Varnarmenn: Natasha Anasi (Grindavík/Njarðvík) Jelena Tinna Kujundzic (Þróttur) Deja Sandoval (FH) Miðjumenn: Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik) Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Ída Marín Hermannsdóttir (FH) Olga Sevcova (ÍBV) Agla María Albertsdóttir (Breiðablik) Sóknarmenn: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Freyja Stefánsdóttir (Víkingur) Sérfræðingarnir hrósuðu framherjum liðsins í hástert en þegar kosningin átti sér stað var Freyja Stefánsdóttir markahæsti leikmaður deildarinnar. Helena Ólafsdóttir talaði vel um Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur: „Hrafnhildur byrjaði þetta mót frábærlega, svo þegar Blikarnir hiksta aðeins þá hikstar hún líka því ef hún skorar ekki þá vinnur Breiðablik ekki endilega. Ég hef svo gaman af henni vegna þess að hún var kosin efnilegust í deildinni fyrir tveimur árum og byrjaði svo árið eftir á bekknum. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það hafi verið erfitt en svo kemur hún núna og massar þetta í byrjun.“ Sérfræðingarnir segja að þetta sé skemmtilegt lið og það væri gaman að sjá það leika gegn landsliðinu. Klippa: Bestu mörkin: Úrvalslið, besti leikmaður og efnilegasti leikmaður Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var kosinn þjálfari úrvalsliðsins og höfðu sérfræðingarnir ýmislegt gott um hann að segja. „Jón Ólafur er búinn að gera vel með það sem hann hefur í höndunum. Það voru margir sem spáðu ÍBV falli en liðið stendur í fjórða sæti deildarinnar og í miklu betri stöðu heldur en fólk þorði að vona.“ Helena Ólafsdóttir talar einnig vel til Jóns Ólafs og kallar hann mikinn reynslubolta. Ásamt því er hann skemmtilegur og gaman í hvíta tjaldinu hans á Þjóðhátíð í Eyjum. Ingibjörg Magnúsdóttir var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar en hún hefur skorað fjögur mörk í Bestu deildinni. Hún er nýkomin heim þar sem hún var með U19 landsliði Íslands á EM og skoraði tvö mörk í lokaleik Íslands. Ída Marín Hermannsdóttir var valin besti leikmaður deildarinnar hingað til og er svo sannarlega vel að því komin. Fyrstu tveir leikirnir hjá bæði henni og FH voru smá stífir en síðan þá hefur Ída Marín spilað frábærlega og sem dæmi skoraði hún fimm mörk gegn Þrótti í síðustu viku. Besta deild kvenna Bestu mörkin Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira
Besta deild kvenna er hálfnuð og í Bestu mörkunum völdu sérfræðingarnir lið deildarinnar hingað til. Jóhann Fjalar Skaptason fékk Helenu Ólafsdóttur og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur með sér til að fara yfir liðið. Einnig var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar og besti leikmaður deildarinnar. Markmaður: Bridgette Skipa (Stjarnan) Varnarmenn: Natasha Anasi (Grindavík/Njarðvík) Jelena Tinna Kujundzic (Þróttur) Deja Sandoval (FH) Miðjumenn: Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik) Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Ída Marín Hermannsdóttir (FH) Olga Sevcova (ÍBV) Agla María Albertsdóttir (Breiðablik) Sóknarmenn: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Freyja Stefánsdóttir (Víkingur) Sérfræðingarnir hrósuðu framherjum liðsins í hástert en þegar kosningin átti sér stað var Freyja Stefánsdóttir markahæsti leikmaður deildarinnar. Helena Ólafsdóttir talaði vel um Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur: „Hrafnhildur byrjaði þetta mót frábærlega, svo þegar Blikarnir hiksta aðeins þá hikstar hún líka því ef hún skorar ekki þá vinnur Breiðablik ekki endilega. Ég hef svo gaman af henni vegna þess að hún var kosin efnilegust í deildinni fyrir tveimur árum og byrjaði svo árið eftir á bekknum. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það hafi verið erfitt en svo kemur hún núna og massar þetta í byrjun.“ Sérfræðingarnir segja að þetta sé skemmtilegt lið og það væri gaman að sjá það leika gegn landsliðinu. Klippa: Bestu mörkin: Úrvalslið, besti leikmaður og efnilegasti leikmaður Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var kosinn þjálfari úrvalsliðsins og höfðu sérfræðingarnir ýmislegt gott um hann að segja. „Jón Ólafur er búinn að gera vel með það sem hann hefur í höndunum. Það voru margir sem spáðu ÍBV falli en liðið stendur í fjórða sæti deildarinnar og í miklu betri stöðu heldur en fólk þorði að vona.“ Helena Ólafsdóttir talar einnig vel til Jóns Ólafs og kallar hann mikinn reynslubolta. Ásamt því er hann skemmtilegur og gaman í hvíta tjaldinu hans á Þjóðhátíð í Eyjum. Ingibjörg Magnúsdóttir var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar en hún hefur skorað fjögur mörk í Bestu deildinni. Hún er nýkomin heim þar sem hún var með U19 landsliði Íslands á EM og skoraði tvö mörk í lokaleik Íslands. Ída Marín Hermannsdóttir var valin besti leikmaður deildarinnar hingað til og er svo sannarlega vel að því komin. Fyrstu tveir leikirnir hjá bæði henni og FH voru smá stífir en síðan þá hefur Ída Marín spilað frábærlega og sem dæmi skoraði hún fimm mörk gegn Þrótti í síðustu viku.
Markmaður: Bridgette Skipa (Stjarnan) Varnarmenn: Natasha Anasi (Grindavík/Njarðvík) Jelena Tinna Kujundzic (Þróttur) Deja Sandoval (FH) Miðjumenn: Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik) Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Ída Marín Hermannsdóttir (FH) Olga Sevcova (ÍBV) Agla María Albertsdóttir (Breiðablik) Sóknarmenn: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Freyja Stefánsdóttir (Víkingur)
Besta deild kvenna Bestu mörkin Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira